Tekið til í Sandvíkinni á Degi íslenskrar náttúru

19.09 2011 - Mánudagur

Síðastliðinn föstudag var Dagur íslenskrar náttúru eins og greint var frá á þessum vettvangi. Jafnframt var frá því greint að daginn ber uppá afmælisdag Ómars Ragarssonar - ekki af tilviljun heldur meistaranum til heiðurs. Daginn ákváðu skólaráðendur að nýta í þeim góða tilgangi að taka til í nágrenni þéttbýlisins, í Sandvíkurfjöru en þangað skilar hafið einu og öðru sem lítt tilheyrir náttúrunni. Hafa nemendur og starfsmenn skólans þá í tvígang tekið til í sveitarfélaginu því sl. vor var rölt um þéttbýlið og það þrifið fyrir sumarið.

Meðfylgjandi er fjöldi mynda sem ungur myndasmiður að nafni Gabríela Sól tók en þrátt fyrir ungan aldur eru margar myndanna framúskarandi og væri sá er þetta ritar stoltur af slíku dagsverki. Eins vera ber var stutt í leikinn samhliða vinnunni og var dagurinn allur þeim er þátt tóku hinn ánægjulegasti. En sum sé, endilega njótið þess sem fyrir myndavélarauga Gabríelu Sólar bar föstudaginn 15. september sl.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir