Fimmtudagar til fróðleiks

20.09 2011 - Þriðjudagur

Á síðastliðnum vetri stóð Þekkingarnet Austurlands í Kaupvangi fyrir erindaröð einn fimmtudag í hverjum mánuði og mæltust vel fyrir og nú skal fram haldið - strax næst komandi fimmtudag er fyrsti fróðleiks fimmtudagurinn á dagskrá. Eins og ávallt er allir velkomnir í Kaupvang þessa daga án endurgjalds og sjálfsagt að leita sér upplýsinga hvað kann að vera í boði hverju sinni. Meðfylgjandi er dagskrá dagana fram í janúar 2012.

Í auglýsingu segir:

 

Fimmtudaginn 22. september kl. 12:15-12:45 í Kaupvangi.

Efni: Efnahagshrunið og skólastarf á Hornafirði.

Fyrirlesari: Eygló Illugadóttir

Þekkingarnet   Austurlands stendur fyrri erindaröðinni Fimmtudagar til fróðleiks í hádeginu annan fimmtudag í mánuði. Erindin eru í fjarfundi.

Dagskrá Fimmtudaga til fróðleiks næstu mánuði:

22. september      Efnahagshrunið og skólastarf á Hornafirði        Eygló Illugadóttir

13. október          Náttúrufar Vopnafjarðar                                    Kristín Jónsdóttir

10. nóvember       Hvað einkennir klasasamstarf á Austurlandi      Kristbjörg Jónasdóttir

8. desember                   Almenningssamgöngur í Fjarðarbyggð     Ásta Kristín Sigurjónsd.

12. janúar 2012   Starfsemi Listasmiðju Norðfjarðar            Theodóra Alfreðsdóttir

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir