Það er kunnara en að frá þurfi að segja að í Selárdal, steinsnar frá sundlauginni, rís þessa mánuðina nýtt veiðihús fyrir Selá og verður í sinni endanlegu mynd stórglæsilegt 900 m2 hús. Útsýnið úr sölum veiðihússins er hreint stórkostlegt og verður án alls efa mikið þakkað af veiðimönnum sem í Selá koma. Þó meginmál heimsóknar fyrir veiðimanninn sé veiðin skiptir miklu máli hvernig að mönnum er búið. Byggingarverktakar hússins eru Mælifellsmenn og af fenginni reynslu verður þeim ekki skotaskuld úr að koma því verki myndarlega frá sér.
Í byggingarlýsingu segir að húsið sé að hluta til á tveimur hæðum þar sem á neðri hæð sé gert ráð m. a. fyrir aðstöðu veiðimanna og herbergjum starfsmanna. Á efri hæð er aðalinnganginn að finna með gestamóttöku, borð- og setustofu ásamt eldhúsi. Stofunum tengdum eru stórir útipallar, sem bjóða upp á stórbrotið útsýni yfir nærliggjandi veiðisvæði og fagra náttúru langt utan við þau. Á hæðinni eru tvær álmur með 4 herbergjum í hvorri álmu og í tengibyggingu 2 eða samtals 10 herbergi. Öll eru herbergin með snyrtingu hvar er að finna fullkominn sturtuklefa og snyrtiborð með handlaug.
Ljóst er að þessi nýbygging mun breyta miklu varðandi aðstöðu veiðimanna í Selá um leið og það býður uppá á aðra óþekkta möguleika fyrir Vopnfirðinga utan veiðitímabilsins. Það verður ánægjuleg stund þegar veiðihúsið verður formlega vígt en fram að því eru mörg handtök eftir og nú er unnið að því að loka húsinu áður en vetur skellur á með tilheyrandi frosti og ofankomu.