Vopnfirðingar fá stuðning úr vestri

22.09 2011 - Fimmtudagur

Um nokkur misseri hafa Vopnfirðingar – og þá einkum sá hópur er kallar sig Vini Vopnfirðinga sögu – unnið að því að koma sögunni á framfæri við íbúa jafnt sem gesti Vopnafjarðar, innan landssteina sem utan. Rekja má upphaf verkefnisins til náms 8 Vopnfirðinga í menningartengdri ferðaþjónustu veturinn 2009-2010 á vegum ÞNA, sem Þórunn Egilsdóttir stýrði. Sem lokaverkefni var viðfangsefnið Vopnfirðinga saga þar sem hver nemandi fékkst við tiltekið verkefni sögunni tengdri en lokaafurðin var hópsins alls. Má segja að verkefnið Vopnfirðinga saga standi á nokkrum tímamótum því Vestur-Íslendingurinn, Stefán Guttormsson, hefur samþykkt að styrkja uppbyggingu s. k. vörðu gegnum sjóð fjölskyldunnar, Guttormsson Family Foundation. Eru þetta eðlilega mikil tíðindi.

 

Með ákvörðun Stefáns er ljóst að hægt verður að hefjast handa við fyrsta stóra verkefnið sögunni tengdri en af öðrum ólöstuðum hefur Ágústa Þorkelsdóttir verið leiðandi í verkefnavinnunni en farnar hafa verið nokkrar ferðir á slóðir Vopnfirðinga sögu undir handleiðslu Ágústu. Hefur Ágústa til að bera þann ósvikna áhuga á sögunni og skilning á hvernig koma á henni til tilheyranda. Mjór er mikils vísir og víst eigum við mikla vinnu framundan eigi okkur að takast að gera Vopnfirðinga sögu að mikilverðum þætti í ferða- og menningarmálum sveitarfélagsins. Getum við horft til nágranna vorra sem lengra eru komnir og nema af þeim, má í því sambandi horfa til Fljótsdælinga og Hrafnkels sögu Freysgoða.

 

Í ákvörðun Stefáns, sem á rætur í Vopnafirði þúsund ár aftur í tímann eins og fram kemur í bréfi hans til sveitarfélagsins, felst bein yfirlýsing um þau ótrúlega sterku bönd sem Vestur-Íslendingar halda við fósturjörðina; litla eylandið í norðri sem ekki auðnaðist að brauðfæða alla þá sem þar áttu sínar rætur undir lok þar síðustu aldar og í upphafi þeirrar næst liðnu. Fyrir okkur sem hér búa, Íslendinga, er áhuginn meðal fólks af íslensku bergi brotinn í Vesturheimi allt að því óskiljanlegur en engu virðist skipta sá tími sem liðinn er frá því að fyrstu landnemarnir numu land vestra og óhjákvæmileg blöndun við fólk af öðrum uppruna á sl. hundrað árum.

 

Framundan eru spennandi tímar í vændum fyrir Vini Vopnfirðinga sögu og aðra íbúa sveitarfélagsins, gesti þeirra og áhugafólk um menningarmál sem og menningartengda ferðaþjónustu. Rætt hefur verið við starfsmenn Bíla og véla um smíði vörðunnar hinnar fyrstu, sem ætlað er að standa við Hof, en þegar upp er staðið gætu þær orðið 3-4. Ekki er sjálfgefið hvernig verkið verður unnið, í því felst mikil áskorun fyrir Bílar og vélar að takast á við það en í einföldu máli samanstendur varðan af þremur hlutum; sverði, skildi og steinhellu – víkingasverði, skildi með texta til ½ og hellu Brodd-Helga Þorgilssonar. Héðan af er áhyggjuefnið ekki hvort heldur hvenær hafist verður handa við gerð vörðunnar og víst vill styrkveitandi sjá verkinu lokið sem allra fyrst, sönnun þess að Vopnfirðingar eru menn orða sinna og ætla sér að koma Vopnfirðinga sögu á framfæri við komandi kynslóðir.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir