
Heimildarmanni bárust nokkrar magnaðar myndir Björgvins hafnarvarðar í gær og gat ekki látið hjá líða að koma þeim að á þessum vettvangi hið snarasta en sumar myndanna eru afburðagóðar. Sjónarhornið er óvenjulegt því Björgvin hefur komist í þá öfundsverðu aðstöðu að því að virðist að svífa um háloftin eins og fuglinn fljúgandi. Árangurinn má sjá hér með þessari litlu frétt en heimildarmaður kann Björgvini hinar bestu þakkir fyrir viðvikið.
Við Vopnfirðingar höfum notið þess að veðrið hefur verið hið besta í september, sumarið kom seint en kom þó og þess njótum við þessar vikurnar. Þetta er ekki fyrsta árið sem blíðviðrið kemur loks þegar haustið er í garð gengið en þó það sé leitt til þess að vita að sumarið svíki okkur þökkum við fyrir tíð sem þessa enda muni hún stytta veturinn a. m. k. í annan endann.
Meðfylgjandi eru myndir Björgvins, njótið vel.