Gengið á Fuglabjarganes

28.09 2011 - Miðvikudagur

Heimildarmaður nýtti sér veðurblíðu mánaðarins og rölti einn síns liðs á Fuglabjarganes, sem er einstakt náttúrufyrirbrigði innan marka Vopnafjarðar. Hinir stakstæðu drangar utan við hátt bergið fremst á nesinu er aðall nessins og þangað var ferðinni heitið. Á hinn bóginn er margt sem fyrir augu ber á göngu ferðamannsins á hinni um það bil 2ja kílómetra leið frá þjóðveginum að nesoddanum og því sjálfsagt og eðlilegt að staldra við og gefa sér tóm til að líta í kringum sig fullur tilhlökkunar um að ná á endanum að þeirri náttúruperlu sem við blasir þegar á áfangastað er komið.

 

Nú skyldu myndir af dröngunum birtast hér á síðunni í dag en þó heimildarmaður sé rétt giska meðalgóður ljósmyndari og kann minna á myndavél hreppsins en hann vill vera láta þykir honum vænt um þær myndir sem hann tekur og á því erfitt með að skera niður þegar kemur að því að velja og hafna. Á hann sér afsökun nokkra því líta má svo á að myndirnar hafi ótvírætt upplýsingagildi, bæði er skýrt að heimasíða sveitarfélagsins skal vera upplýsingaveita og fyrir þann sem ekki hefur reynt eru fleiri myndir en færri betri kostur. Að sjálfsögðu ber að taka viljann fram yfir verkið því mikið vildi sá sem þetta ritar standa sig!

 

Ofangreint þýðir tvennt: 1) Myndir af dröngunum eru ekki með að þessu sinni. 2) Myndir af dröngum birtast síðar. Ergó: Fólk hefur ástæðu til að láta sig hlakka til líkt og sá sem gönguna fer.

 

Fer hér á eftir myndasyrpa þar sem á Fuglabjarganes er gengið.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir