Léttmessa, ferðamálafundur og námskeið

29.09 2011 - Fimmtudagur

Mikið er um að vera á Vopnafirði næstu daga því á sunnudag kl. 14:00 er léttmessa í Vopnafjarðarkirkju, sunnudagaskóli þá um morguninn, kökubasar að lokinni léttmessu og umræðufundur með Gunnari Hersveini í safnarðarheimlinu kl. 15:00. Á mánudag hafa Ferðamálasamtök Vopnafjarðar boðað til fundar í Miklagarði n. k. mánudag kl. 16:00 í félagsheimilinu Miklagarði – fundurinn er öllum opinn svo sem segir í auglýsingu sem fór í öll hús sveitarfélagsins í dag – og loks örnámskeið í Vopnafjarðarskóla kl. 20:00 undir handleiðslu Helgu Margrétar Guðmundsdóttur, ráðgjafa.

 

Sunnudaginn 02. okt. kl. 14:00 verður léttmessa í Vopnafjarðarkirkju. Afrískir sálmar og söngvar. Gunnar Hersveinn prédikar. Eftir messuna verða 10-12 ára börn með kökubasar til styrktar þrælabörnum á Indlandi. Sunnudagaskólinn hefst í messunni, en svo halda börnin yfir í safnaðarheimilið þar sem stundin heldur áfram.

 

Umræðufundur um „Þjóðgildin - áttaviti sem vísar veginn” með Gunnari Hersveini hefst kl. 15:00 í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.

 

Gunnar Hersveinn er höfundur bókarinnar Þjóðgildin, þar segir m.a.: „Of lengi hafa of fáir farið með vald þjóðarinnar án auðmýktar. Íslendingar eru óánægðir lýðræðissinnar sem geta tekið valdið til sín aftur.“

 

Sjá nánar: www.lifsgildin.is Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

Í auglýsingu Ferðamálasamtaka Vopnafjarðar er spurt: Hvað getum við öll lagt að mörkum til að gera Vopnafjörð ennþá meira aðlaðandi fyrir gesti og gangandi? Hverjar eru þínar hugmyndir? Með þetta í huga er boðað til almenns fundar í félagsheimilinu Miklagarði mánudaginn 03. október kl. 16.00 og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta en fátt er brýnna en að ferðaþjónustan nái frekari fótfestu á Vopnafirði en til mikils er að vinna enda veltir geirinn yfir 180 milljörðum á ári.

 

Stofnaður hefur verið ferðamálaklasi á Vopnafirði og horfa aðstandendur til þess að smám saman nái ferðaþjónustan að festa sig frekar í sessi en á sama tíma og hugað er að vexti er þrengt að söfnum landsins og er minjasafnið á Bustarfelli sannarlega engin undantekning. En sum sé, fundur á mánudaginn næst komandi kl. 16:00 í Miklagarði.

 

Hvernig hlúum við að börnunum okkar í skólanum?

 

Þannig er spurt í aðdraganda námskeiðs í Vopnafjarðarskóla mánudaginn 03. október n. k. Á námskeiðinu fjallar Helga Margrét Guðmundsdóttir um samstarf foreldra og skóla og hvernig foreldrar geta haft áhrif á nám og líðan barna sinna.

 

Helga Margrét er sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún starfaði hjá landssamtökum Heimilis og Skóla í mörg ár og hefur látið sig varða uppeldis- og menntunarskilyrði barna. Helga hefur einnig skrifað pistla og greinar um fjölskyldumál en hún er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt.

 

Þetta námskeið átti að vera í vor en var frestað vegna veðurs. Allir eru velkomnir en það er Foreldrafélag Vopnafjarðarskóla sem að námskeiðinu stendur.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir