Heimsókn á Drangsnes

30.09 2011 - Föstudagur

Heimildarmaður hefur verið óþreytandi að kynna sér náttúruperlur í Vopnafirði sl. daga enda hefur veður sannarlega gefið tilefni til. Hér á síðu Vopnafjarðarhrepps hafa birst myndir af Hellisheiði, Skjólfjörum, Fuglabjarganesi og nú loks af Drangsnesi. Um leið ferðamaðurinn, í þessu tilfelli heimilidarmaður síðunnar, fær notið útiverunnar í einstakri náttúrunni gefst þeim er síðuna sækja heim innsýn í þá veröld sem kynnt er hverju sinni. Skiptir engu máli hversu vel hlutaðeigandi kann að þekkja til aðstæðna - fyrir heimamanninn þekkir hann án efa miklu betur til en frásegjandi - því upplifunin hvers og eins er ólík, það sem einn sér er öðrum dulið og öfugt.

Með því að segja sögu, vissulega af nokkurri fákunnáttu þar sem ekki er gerð tilraun til láta líta öðru vísi út, studda af fjölmörgum myndum er heimasíða sveitarfélagsins að einhverju leyti að uppfylla þá sjálfsögðu kröfu að náttúruperlur sveitarfélagsins séu kynntar um leið og dýrmætur gagnagrunnur er tryggður. Það hefur ítrekað verið skrifað á þessum vettvangi að Vopnfirðingar eiga verk að vinna við að koma sér á framfæri, þáttur heimasíðunnar getur verið drjúgur í þeim efnum, því Vopnafjörður státar af umhverfi sem náttúruunnandinn mun heillast af.

Að þessu sinni mun heimildarmaður láta 60 ljósmyndamyndasyrpuna segja söguna af heimsókninni á Drangsnes en þó svæðið hafi ekki uppá að bjóða VÁ-upplifunina í líkingu við nágranna sinn, Skjólfjörur, eða Fuglabjarganes, er þar margt að sjá og gangan sannarlega þess virði að leggja á sig. Sjáið bara og sannfærist.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir