Á aðalfundi SSA, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, sem haldinn var í Hallormsstað sl. föstu- og laugardag voru tveir Vopnfirðingar heiðraðir fyrir störf þeirra í þágu samfélags síns og fjórðungsins. Annars vegar var Ólafur K. Ármannsson heiðraður fyrir störf sín að sveitarstjórnarmálum um áratuga skeið en Ólafur sat í sveitarstjórn Vopnafjarðar um árabil ásamt setu í stjórn SSA. Hins vegar Sigríður Dóra Sverrisdóttir fyrir störf í þágu menningar um langt árabil og munu báðir aðilar vera einkar vel að heiðursviðurkenningum komin.
Meðfylgjandi myndir fékk heimildarmaður sendar frá Andrési Skúlasyni, vini og sveitarstjórnarmanni á Djúpavogi, einn fulltrúa á aðalfundinum. Fær Andrés sendar bestu kveðjur fyrir viðvikið og hlutaðeigandi heiðursverðlaunahafar fyrir viðurkenningar sínar, sem nánar verður frá greint á þessum vettvangi síðar.
Á myndunum eru makar verðlaunahafa, Þórhildur Haraldsdóttir og Svavar Halldórsson, en þau hafa ávallt stutt við bak maka sinna í störfum þeirra í þágu samfélagsins Vopnfirska.