Einn gimsteina í náttúru Vopnafjarðar er Tangasporður og þó sumum finnist hann snúa öfugt, þ. e. sporðurinn skuli vera sá hluti sem gengur á haf út og ekki til innlands, breytir það engu um þá fegurð sem hann býr yfir. Nú er það svo að heimildarmaður er óvenju hrifnæmur, hvar sem hann fer og hrífst tekur hann að meðaltali 1/2 fleiri myndir en velflestir samferðamenn hans gera - betra að eiga eina auka ef eitthvað skyldi nú út af bera ...
Í blíðviðri var rölt á tangann meðvitaður um að rafhlaða myndavélar var farin að gefa sig, þ. e. tími áfyllingar yrði ekki umflúinn fyrr en síðar. Svo fór að norðurhlið Kolbeinstanga var mynduð sem aldrei fyrr en þegar Tangasporði var loks náð sagði myndavélin hingað og ekki lengra, sem þýðir að þegar veður gefst síðar verður boðið uppá seinni hluta heimsóknar á Tangasporð og stendur hann alveg undir tveimur heimsóknum eins fagur er hann!
Ýmist er hægt að fara á sporðinn norðanmegin, líkt og heimildarmaður gerði, og ganga fyrir oddinn að átt að Leiðarhöfn en bæjarstæðið er hið fegursta. Margt ber fyrir augu á leiðinni, norðanmegin eru svo nefndar Þórshafnir og þær voru myndaðar í bak og fyrir að þessu sinni. Fjörurnar eru af ýmsum útgáfum með bergmyndunum svo fjölbreyttum að ferðamaðurinn hefur vart við að nema það sem fyrir augu ber. Þó landið sé fagurt yfir að líta er það svo að maður leitar til sjávar því þar sem haf mætir landi eiga sér stöðugar breytingar, bæði vinnur hafið á landinu og þar eð hafið ann sér aldrei hvíldar er sviðsmyndin í raun aldrei sú sama.
Ferð um Tangasporð er fyrir þann sem ann náttúrunni í fjölbreytileika sínum nauðsynleg og sjálfsagt að leggja í ferðina frá ytri grjótnámunni, sem með nokkurri vinnu og hugkvæmni má umbreyta í lítið Ásbyrgi því þegar er búið að móta klettaveggina og grunn fyrir jarðveg í botni "byrgisins". Lengd göngu um Tangasporð er um 4.5 km. og er mislétt að fara um eins og ávallt er þar sem landið er ekki einslitt.
Meðfylgjandi er myndasyrpa heimildarmanns, sem lét ógert að hengja við myndirnar (misgáfulegan) texta og eftirlætur myndmálinu að koma á framfæri því sem náttúran vill segja þeim er hana sækir heim - á tölvuskjánum ef ekki vill betur.