Athyglisvert námskeið í grunnskólanum

04.10 2011 - Þriðjudagur

Fyrir tilstuðlan foreldrafélags Vopnafjarðarskóla var námskeið haldið í sal skólans í gærkvöldi undir heitinu Hvernig hlúum við að börnunum okkar í skólanum? Til Vopnafjarðar kom Helga Margrét Guðmundsdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og áður starfsmaður Heimilis og skóla, til þess að eiga með foreldrum eina kvöldstund. Formaður foreldrafélagsins er Stefán Már Gunnlaugsson, opnaði hann hann á umræðuna með stuttu ávarpi.

 

Helga Margrét er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og á sérlega létt með að koma skýrum skilaboðum frá sér með lifandi og skemmtilegum hætti. Fór svo að á þeim liðlega 2 klukkustundum sem námskeiðið stóð – raunar áttaði sig enginn á hvað tíminn flaug – fengu foreldrar grunnskólabarna á Vopna- og Bakkafirði aukinn skilning á hlutverki skólans í nútíma samfélagi, samskiptum foreldra við skólann og umfram allt mikilvægi þess að börnin okkar eigi þar góðar stundir, alltaf. Þar er þáttur foreldra afgerandi.

 

Ætlar heimildarmaður að leyfa sér að greina frá í stuttu máli að greina frá innihaldi námskeiðsins, sem gefur Helgu Margréti fyrstu einkunn fyrir að gjörnýta þann tíma sem henni var skammtaður, eins og hann greindi það:

 

Þrír hópar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla, þ. e. nemendur, starfsfólk skólans og foreldrar og er samstarf þeirra afgerandi þáttur eigi vel að takast til. Til þess að svo megi verða er þörf á reglulegri umræðu ræða um áherslur og komast að samkomulagi um meginviðmið. Hlutverk hvers og eins þarf að vera vel skilgreint og kynnt, þ. e. a. hvern og einn þekki hlutverk sitt.

Starfsemi foreldrafélaga í grunnskólum er í stöðugri þróun, nýlega var t. a. m. bundið í lög að við hvern skóla starfi foreldraráð og með tilkomu þeirra hefur starf foreldrafélaga verið endurskoðað og má vænta ýmissa breytinga í Vopnafjarðarskóla hér að lútandi þegar í vetur. Markar námskeiðið skref í þá átt. Hið sama á við um starf bekkjarfulltrúa en Helga Margrét leggur áherslu á hlutverk þeirra í þessu samhengi þó aldrei verði það svo að fulltrúinn einn vinni verkið fyrir alla hina heldur verði foreldrahópurinn allur virkjaður til samstarfs. Er það mat ráðgjafans að foreldrasamstarf sé einkar mikilvægt og virkir foreldrar geti haft úrslitaáhrif á líðan barnanna innan og utan skólans og námsárangur.

 

Fram til þessa hafa þau skil verið á milli kennara og foreldra að foreldrið horfir til líðan barns síns í bekknum meðan kennarinn lítur gjarnan á bekkinn sem eina heild – samskipti og vönduð upplýsingagjöf um hlutverkaskiptan mun breyta þessu. Í foreldrasamfélaginu gegna bekkjarfulltrúar lykilhlutverki í samskiptum foreldra og skólans. Bekkjarfulltrúar eiga sinn þátt í að byggja upp góðan bekkjaranda og kunna að koma að málum eins og einelti og félagslegri einangrun. En aftur að virkni annarra foreldra því þó bekkjarfulltrúinn sé fulltrúi þeirra er það ekki hans að vinna verkið einn.

 

Lagði Helga Margrét á það áherslu að foreldrar hafi ekki s. k. „rörsýn“ á barnið sitt heldur horfi til bekkjarins í víðara samhengi en með bættum bekkjaranda og vinnufrið í kennslustundum er markviss leið til að bæta aðra þætti og vinna á t. a. m. einelti. Áleitinna spurninga var kastað fram viðvíkjandi hlutverk skólans, hlutverk foreldra, samstarf þessara aðila með það að markmiði að bætal líðan barnanna í skólanum. Skólarnir þurfa að hafa frumkvæði að því að efla samstarf við heimilin um leið og foreldrar sýni því áhuga sem skólinn vill gera.

 

Að námskeiði loknu gat þátttakandinn sá sem þetta ritar ekki varist þeirri hugsun hversu vel er að okkur búið hér á Vopnafirði því þó alltaf megi gera betur er það starf sem unnið er í Vopnafjarðarskóla markvisst og líðan barna almennt með ágætum. Staðreyndirnar tala sínu máli en lengi má gott bæta og námskeiðið í gærkvöldi óræk sönnun þess að foreldrafélag skólans ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í þeim efnum. Ber að fagna því.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir