Þann 12. september sl. birtist frétt hér á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps undir yfirskriftinni „Samgöngubót án hliðstæðu“ með vísan til hins nýja þjóðvegar um Vesturárdal í Vopnafirði. Þó þann dag hafi vegurinn ekki verið að fullu kláraður, sem hann er nú og ber framkvæmdaaðilanum glæst vitni, var hann langt kominn og þegar farinn að þjóna hlutverki sínu. Heimildarmaður þreytist ekki á að minna á hversu snjöll sú niðurstaða er að veginum skyldi valin leið um Vesturárdalinn því með þeirri framkvæmd komust Vopnfirðingar ekki einungis loks í vegasamband við þjóðveg 1 um heilsársveg heldur fengu þeir nýjan innansveitarveg sem aldrei hefði boðist hefði önnur leið verið valin.
Sagan er ekki nema hálfsögð því samfara veglagningu um Vesturdalinn skyldi loks komið á tengingu milli dala og þar eð Hofsárdalur nýtur þegar ágæts vegar njóta heimamenn og gestir kosta sem virtust svo fjarlægir fyrir nokkrum árum síðan, uppbyggðra vega um tvo dali. Þarf vart að eyða fleiri orðum um þær samgönguumbætur sem í verkinu felst en heimildarmaður læddist í vikunni yfir Hofsháls, um millidalaleið, sem KNH vinnur að þessa mánuðina og verður á næsta ári tilbúin fyrir almenna umferð með bundnu slitlagi, og hefur þá sannreynt á eigin beinum hversu mjög sá vegur á eftir að verða til hagsbóta.
Útsýnið af hálsinum er hið yndislegasta og verður án alls efa áningarstaður margra enda gefast ýmis tækifæri til útivistar sem lengra var að sækja áður. Má vel sjá fyrir sér að sunnudagsrúnturinn verði einmitt þessi, inn Vesturárdal, millidalaleið - áning - út Hofsárdal. Að talað verði um að fara "rúntinn" héðan af ...
Meðfylgjandi er myndasyrpa, sem heimildarmaður tók, og ber textinn þess merki að ferðin var vinnutengd en nú þegar framkvæmdir nálgast sitt endalok þarf að íhuga vel hvar vega- og upplýsingaskiltum verða valin staður. Það er ánægjulegt, krefjandi verkefni komandi vikna og mánaða en óháð skiltum aka Vopnfirðingar og þeir sem hingað koma glæsilegan veginn og verður seint ofmetið mikilvægi framkvæmdarinnar, sem sjálfsagt verður fagnað með formlegum hætti enda hefur af minna tilefni verið efnt til fagnaðar.