Á fundi í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju í gær kynnti Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi Evrópu unga fólksins (EUF) starfsemi samtakanna en heitið stendur fyrir ungmennaáætlun Evrópusambandsins (Youth in Action). Ísland er eyland í þeim skilningi að landið er eyja en sem hluti af Evrópu á Ísland í margvíslegu samstarfi við aðrar Evrópuþjóðir. Fór heimildarmaður margs vísari af fundi með unga kynningarfulltrúanum. Ísland í eða utan Evrópusambandsins eru meginsamskipti okkar við aðrar þjóðir Evrópu og fyrir lítið land, sem lengi var einangrað í samfélagi þjóðanna, eru samskiptin mikilvæg.
Hvað er þá Evrópa unga fólksins? EUF veitir styrki til ungmenna á aldrinum 13 til 30 ára til verkefna sem byggja á óformlegu námi og eru skipulögð af ungu fólki. Samtökin veita styrki til að taka þátt í námskeiðum fyrir þá sem vinna með ungu fólki og veitti á árunum 2007-2010 styrki upp á 460 milljónir til 206 verkefna með liðlega 2800 þátttakendum. Stærð verkefna er ekki höfuðatriði heldur vel skilgreind markmið.
Styrkir á vegum EUF eru margvíslegir, má þar nefna ungmennaskipti, frumkvæðisverkefni, sjálfboðaliðsstarf, þjálfun og samstarf, fundi ungs fólks v/æskulýðsmála og námskeið ýmis konar.
Ungmennaskipti er verkefni þar sem hópur ungs fólks fer á milli landa og hittir annan sambærilegan hóp eða hópa í 6-21 daga. Hóparnir vinna saman verkefni í kringum ákveðið þema, t. d. íþróttir, útivist, mannréttindi, listir, menningu o. fl. Gjarnan skilar hópurinn af sér einhverri afurð til þess staðar sem vistar hópana. Aldur ungmennanna er 13-25 ára, minnst 16 þátttakendur og mest 60. Löndin geta verið mörg, yfir 10 ef því er að skipta og vinna þá saman að umsókninni þó einhverjar leiði vinnuna til einföldunar á ferlinu. Félagsmiðstöðin Pleizið á Dalvík fékk styrk til að vinna með 3 öðrum þjóðum í Evrópu og hafa gert um árabil.
Frumkvæðisverkefni er verkefni þar sem hópur af ungu fólki á frumkvæði að því að hrinda í framkvæmd eigin hugmynd og láta hana verða að veruleika. Slík verkefni geta bæði verið innanlandsverkefni og fjölþjóðleg. Aldur þátttakenda 15-17 ára með leiðbeinanda á aldrinum 18-30 ára – og þátttakendur minnst 4 í innanlandsverkefni og 8 í fjölþjóðlegu.
Sjálfboðaliðaliðastarf – að fara sem sjálfboðaliði – að fá sjálfboðaliða. Ungu fólki býðst að fara til Evrópu sem sjálfboðaliðar í 2 vikur og allt upp í 12 mánuði. Þar gefst þeim færi á að sinna fjölbreyttum störfum, kynnast ólíkri menningu og öðlast reynslu sem nýtist þeim alla ævi. Miðað er við aldurinn 18-30 ára þó í tilfellum megi þau vera 15-17 ára. Á hinn bóginn stendur samtökum/stofnunum til boða að fá til sín sjálfboðaliða. Þar gefst tækifæri til að deila þekkingu og auðga starfsemi samtaka/stofnana með þátttöku og framlagi sjálfboðaliðans.
Ofangreint er hluti þess sem í boði er og hafandi fengið kynningu á því merkilega starfi sem fram fer á vegum EUF er ljóst að áhugi er vakinn á Vopnafirði og kemur í hlut hlutaðeigandi stofnana/samtaka að vinna að framgangi málsins. Rétt er að vekja athygli á veffangi samtakana, www.euf.is