Loðna finnst og framúrskarandi íslensk útgerð verðlaunuð

10.10 2011 - Mánudagur

Víkingur AK er, samanber meðfylgjandi myndir, kom inn til hafnar á Vopnafirði með um 1.000 tonn af stórri og fallegri loðnu sem fékkst í grænlenskri lögsögu í vikulok liðinnar viku. Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, segir Guðmundur Hafsteinsson, stýrimaðaur á Víkingi, að ástandið á miðunum sé með ágætum. Það lóði á loðnutorfur á þó nokkuð stóru svæði en torfurnar mættu vera þéttari.

 

Víkingur fór til loðnuleitar út af Vestfjörðum um fyrri helgi en úthaldið þá varð skammvinnt vegna brælu. Áður en veður versnaði varð vart við álitlegar lóðningar en enginn afli fékkst áður en skipinu var haldið til hafnar á Ísafirði þar sem þess var beðið að veðrið gengi niður. Samkvæmt veðurspánni var útlit fyrir að vel gæti viðrað til nótaveiða þegar liði á vikuna og gekk það eftir. Víkingur fór að nýju til veiða á fimmtudag og á aðfararnótt föstudagsins fengust um 500 tonn af loðnu í fjórum köstum. Skipið var þá statt á um 68°34´N og 23°07V. Aðfaranótt föstudagsins fengust svo 500 tonn til viðbótar og á laugardagsmorgun 08. september sl. var stefnan svo sett á Vopnafjörð.

 

Á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2011, sem fram fór í Smáranum í Kópavogi í fyrri viku, voru Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru veitt í fimmta sinn að kvöldi fyrsta sýningardagsins á sýningunni. Meðal verðlaunahafa að þessu sinni var HB Grandi sem, að mati dómnefndar, verðskuldaði að fá viðurkenninguna ,,framúrskarandi íslensk útgerð.“

 

Að verðlaununum standa Íslenska sjávarútvegssýningin, Fiskifréttir og tímaritið World Fishing. Verðalaunaafhendingin fór fram í Gerðarsafni í Kópavogi og eru verðlaunin veitt þeim sem þykja hafa skarað framúr í fiskveiðum og sjávarútvegi bæði á Íslandi og erlendis. Alls eru veitt 17 verðlaun hverju sinni og fá vinningshafar  leyfi til að nota merki verðlaunanna á kynningarefni sitt. Í rökstuðningi dómnefndar fyrir vali á HB Granda, sem framúrskarandi íslensks útgerðarfyrirtækis, segir:

 

,,HB Grandi er eitt glæsilegasta útgerðarfyrirtæki landsins. Það gerir út 12 skip, þar af fimm frystitogara, þrjá ísfisktogara og fjögur uppsjávarskip. Fyrirtækið hefur ávallt verið rekið af mikilli framsýn og dugnaði og lagt ríka áherslu á háþróaða tækni við veiðar og vinnslu.“

 

Fær HB Grandi hf. hér með árnaðaróskir með viðurkenninguna og góðar kveðjur á nýhafinni loðnuvertíð. Meðfylgjandi eru myndir frá Vopnafjarðarhöfn, teknar sl. sunnudag, en eins og sjá má hafði hafnarvörður í nógu að snúast.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir