Fulltrúar 10 ferðaskrifstofa frá Reykjavík munu heimsækja Vopnafjörð í dag auk annarra sveitarfélaga á Austurlandi. Skipta raunar fulltrúarnir með sér liði því 10 fara norður, Jökulsárhlíðin, Vopnafjörður vía Hellisheiði, Sænautasel, Skjöldólfsstaðir og enda á Seyðisfirði. Eins og dagurinn byrjar með heiðríkju og stillu hefur grunnurinn verið lagður að góðum degi en ólíkt ánægjulegra er að bjóða heim þegar svo viðrar en þegar vindar blása og ofankoma lemur á hlutaðeigandi.
Ferðamálafulltrúi hefur undirbúið heimsóknina að kostgæfni sem og ferðaþjónustuaðilar í sveitarfélaginu. Hefur fulltrúinn föndrað efni til að leggja í hendur ferðamálafólks en hann mun hitta mannskapinn í Syðri-Vík og halda svo með hópnum inn að Síreksstöðum og Bustarfelli en minjasafnið er jú eitt helsta kennileiti Vopnafjarðar og mun örugglega ekki líða fyrir hinn nýja þjóðveg vegna tilkomu millidalaleiðar. Eftir heimsókn í Bustarfell er haldið út í þorp með Kaupvang sem vettvang en þar fá ferðalangar upplýsingar um hvað sveitarfélagið hefur að bjóða, til viðbótar við það sem áður hefur verið sagt.
Í Kaupvangi mun Múlastofa og Vesturfarasetur verða skoðað auk þess sem boðið verður upp á hádegisverð að hætti frú Ágústu í Kaupvangskaffi. Heiðarbýlaverkefnið ber að sjálfsögðu á góma en áður hefur ferðamálafulltrúi kynnt hugmyndir hans um þörfina á að koma upp Sögusetri Vopnafjarðar þar sem með upplýsandi hætti verður saga Vopnafjarðar sögð, allt frá frásögn Heimskringlu af Drekanum ógurlega er varði land að austanverðu fyrir hvali Hákonar konungs til nútímans. Í milli dreka og nútímans er mikil saga, Vopnafjörður er annar elsti verslunarstaður Austurlands sem dæmi.
Fólk frá eftirfarandi ferðaskrifstofum kemur:

Kristín B. Sigurbjörnsdóttir, Iceland Explorer
Vilhjálmur Kjartansson, Island Pro Travel
Halla Jónsdóttir, Ísafold Travel
Steinunn Guðbjörnsdóttir, Íshestar
Ramona Pittroff, Katla DMI
Jóhanna María Kristinsdóttir, Snæland Grímsson
Guðný Gígja Benediktsdóttir, Guðmundur Jónasson
Guðríður Ólafsdóttir, Iceland Travel
Aldís Welding, Terra Nova
Gunnhildur Guðjónsdóttir, Ferðaskrifstofa Bænda
Ásdís Dögg Ómarsdóttir, Arctic Adventures