Líkt og greint var frá á þessum vettvangi þann 20. september sl. er erindaröð Þekkingarnets Austurlands, Fimmtudagar til fróðleiks, komnir af stað þennan veturinn. Kaupvangur er vettvangur erindanna, sem koma víða að, var t. a. m. það fyrsta sent frá Höfn í gegnum fjarfundabúnaðinn. Á morgun, fimmtudaginn 13. október, er engin þörf fyrir búnaðinn, fyrir Vopnfirðinga vel að merkja, því erindið er flutt í húsakynnum ÞNA í Kaupvangi og fyrirlesarinn Kristín Jónsdóttir, kennd við Skóga og öllum vel kunn.
Í auglýsingu ÞNA segir.
Fimmtudagar til fróðleiks
Fimmtudaginn 13. október kl. 12:15-12:45 í Kaupvangi.
Efni: Náttúrufar Vopnafjarðar
Fyrirlesari: Kristín Jónsdóttir (Stína í Skógum)
Má búast við að fyrirlesturinn verði hinn athyglisverðasti og ánægjulegur á að hlýða. Eru íbúar hvattir til að mæta í Kaupvang eigi síðar en kl. 12:15 á morgun.