Vel heppnuð heimsókn ferðaskrifstofufólks

13.10 2011 - Fimmtudagur

Vopnafjörður bauð upp á hið besta veður er 10 fulltrúar ferðaskrifstofa úr Reykjavík sóttu sveitarfélagið heim í gær þó ekki væri Hellisheiðin fær og sannast enn að mikill munur er á hvort hæðin er 10-20 metrar yfir sjávarmál eða 500. Lykkjan, en farið var fyrst að Svartskógi, þýddi seinkun um 50 mínútur miðað við áætlun en dagskrárbreytingu enga og þeir staðir sem fyrirhugað var að heimsækja voru sóttir heim. Byrjað var áætlun samkvæmt á hlaðinu í Syðri-Vík þar sem frú Kristín tók á móti mannskapnum og sumarbústaðarnir skoðaðir í framhaldinu.

Á akstursleið til Syðri-Víkur, til Síreksstaða og áfram ferðina á enda lét ferðamálafulltrúi dæluna ganga án þess að þreyta mannskapinn um of en víst var eins miklum upplýsingum á framfæri komið og gerlegt er á skömmum tíma. Föndurgerð hins sama skilaði ætluðu verki og féll í frjóan jarðveg, þ. e. gögnunum var vel tekið en þáttur Ástu, framkvæmdastýru Markaðsstofunnar, var ennfremur mikill en hún þekkir vel til aðstæðna allra.

Á Síreksstöðum bauð gesta glæsilegt hlaðborð með krásingum úr heimabyggð, frá Síreksstöðum og var sérlega vel tekið. Aðstæður voru síðan skoðaðar  á staðnum undir handleiðslu Sigríðar og Halldórs uns haldið var í Bustarfell hvar Björg Einarsdóttir tók á móti mannskapnum; eins og ávallt vakti bærinn aðdáun gesta og vonandi að það skili sér svo áfram þegar að bókunum kemur - og gildir fyrir sveitarfélagið í heild sinni. Luku allir fulltrúar upp lofsyrði um fegurð sveitarfélagsins og þótti þorpið sérstaklega snoturt og snyrtilegt.

Í Kaupvangi tók frú Ágústa á móti ferðalöngum með úrvals "naglasúpu", grænmetissúpu að hætti hússins með heimabökuðu brauði. Þar kynnti Ágústa nánar Vopnfirðinga sögu og í framhaldi var myndasyrpa með myndum frá Hellisheiði, Skjólfjörum, Drangsnesi, Tangasporði og Fuglabjarganesi. Að afloknum mat, sögukynningu og mynda var haldið á 1. hæð, Múlastofa skoðuð sem og Vestufarasetur þar sem Cathy var til svars. Um kl. 14:30 var stórgóðri heimsókn lokið og ljóst að öllu betri kynningu gat Vopnafjörður vart boðið, fór það saman undirbúningsvinna hlutaðeigandi og hið ágæta veður sem bauðst.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir