Sunnudaginn 16. okt. kl. 16:00 stendur æskulýðsfélag Hofsprestakalls - Kýros - fyrir kvikmyndasýningu í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju í tilefni af upphafi Vinavikunnar 2011. Sýnd verður myndin Rango. Frítt er fyrir alla vini.
Í fersku minni er hversu vel tókst til á vinaviku sl. árs og ber að lofa frumkvæðið því aldrei er of oft á það minnst hversu mikilvægt er að horfa með jákvæðni til náungans. Heimildarmaður á enn Vinavikuhjartað frá því í fyrra, hangir á vísum stað á skrifstofu hans til áminningar um framtakið góða og innihald þess.
Sjoppa verður á staðnum; popp, gos, sælgæti og krap úr vél. Ágóði sölunnar rennur í ferðajóð æskulýðsfélagsins.
Fyrir sýningu myndarinnar verður sýndur þáttur með Hafdísi og Klemma úr Sunnudagaskólanum.
Verum öll hjartanlega velkomin.
Kvikmyndin er sýnd með leyfi rétthafa.