Ferðaþjónustuaðilar á Vopnafirði fá styrk úr VAXA

14.10 2011 - Föstudagur

Í upphafi ársins var formlega stofnað til samstarfs ferðamálaðila á Vopnafirði, klasi varð til, Ferðamálasamtök Vopnafjarðar. Í eðlilegu framhaldi af klasastofnun var unnin verkáætlun sem skyldi liggja til grundvallar komandi verkefna, sem eru ágætlega skilgreind í áætluninni þó hún skoðist sem drög eins og segir í inngangi.

Hafandi komið saman samstarfshópi í ferðaþjónustu voru vandaðar umsóknir sendar inn til stofnarna sem beinlínis er ætlað að styðja verkefni sem þetta. Þrátt fyrir góða viðleitni var hugmyndinni alls staðar hafnað með þeim afleiðingum að nokkuð dró af fólki enda stóðu væntingar til að framtakið hlyti náð fyrir augum einhverra sjóðsstjórna. Það var því afar gleðilegt þegar af því bárust spurnir þann 03. október sl. að umsókn ferðamálasamtakanna hefði fengið jákvæða afgreiðslu í stjórn VAXA, Vaxtasamnings Austurlands, með styrkupphæð kr. 1.5 milljónir en VAXA hafði áður hafnað umsókninni.

 

Niðurstaðan opnar á tækifæri sem ekki virtust í sjónmáli svo seint sem daginn fyrir hina jákvæðu afgreiðslu og þó ekki liggi fyrir á þessari stundu hvernig styrknum verður ráðstafað má öruggt telja að ekki verður vandamál að nýta þessa þörfu fjárhæð í þágu góðra verkefna. Til greina kemur að ráða tímabundið starfsmann, sem myndi þá hafa frumkvæði að því að hrinda í framkvæmd hluta eða allra þeirra hugmynda sem settar eru fram í verkáætluninni.

 

Í stuttu máli er einkum horft til gönguleiða, vatnaveiði, viðburða í þéttbýli, fuglaskoðunar og heiðabýla í fyrstu áætlunum ferðamálasamtakanna. Svo sem áður greinir hefur opnast á tækifæri og þar sem mjór er mikils vísir horfum við fram á veginn með tilhlökkun og góðri von um bjarta framtíð ferðamála á Vopnafirði. Og þegar sagt er ferðamál eru atvinnu- og menningarmál skammt undan.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir