Athyglisverð vinna Kristínar við náttúruskoðun Vopnafjarðar

17.10 2011 - Mánudagur

Líkt og frá var greint á þessum vettvangi sl. miðvikudag skyldi Kristín Jónsdóttir frá Skógum halda erindi í Kaupvangi, sem hluti erindaraðar ÞNA , Fimmtudagar til fóðleiks, og gerði það með glans að viðstöddum góðum hópi fólks víðs vegar á Austurlandi. Á sl. árum hefur Kristín leitað sér framhaldsmenntunar við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og tók fyrir í BS-ritgerð sinni náttúru Vopnafjarðar og nefnir ritgerðina Náttúrufar Vopnafjarðar. Kom fram í máli Kristínar að ekkert heildstætt yfirlit er til um náttúrufar í Vopnafirði, upplýsingar nokkrar en þær dreifðar og því illa aðgengilegar.

 

Í stuttu máli var markmið Kristínar að safna saman sem mestum upplýsingum um náttúru Vopnafjarðar svo sem greina má á heiti ritgerðar. Aðferðarfræðin var heimildarleit, samantekt og vinnsla úr gagngrunnsgögnum auk þess sem upplýsinga var leitað til kunnugra. Ennfremur byggir vinnan á sjónrænum athugunum og með myndun. Einungis hluti gagnagrunnsgagna er aðgengilegur almenningi en þekkingaröflun ku vera lengst á veg komin í jarðfræði og vatnalíffræði en skemmst á smádýralífi og kortlagningu fugla og gróðurs. Vakti það athygli heimildarmanns og fleiri hversu takmörkuð stúdía hefur t. a. m. farið fram á rjúpu í Vopnafirði og ekki síður að hrafninn skuli vera skráður á válista Náttúrufræðistofnunar.

 

Mikilvægt er að þekkja umhverfis sitt hvar sem er á jörðinni segir í inngangi. Þekkingaröflun gefur frekara tækifæri til að skilja og umgangast umhverfi okkar af skynsemi. Vistkerfi eru samsett úr ótal mörgum þáttum – lífrænum og ólífrænum – sem mynda órjúfanlega heild. Enginn eitt þáttur í vistkerfi búsvæðis breytist án þess að hafa áhrif á aðra þætti. Loftlagsbreytingar síðari ára eru gott dæmi um víðtækar breytingar sem haf áhrif á hitafar, sjávarstöðu og gróðursamfélög segir ennfremur í inngangi en rétt er að hvetja Vopnfirðinga sem aðra að kynna sér vinnu Kristínar, sem telja verður hvalreka fyrir Vopnafjörð því eins og segir áður er þörf á frekari rannsóknum á náttúru sveitarfélagsins.

 

Að endingu er rétt að greina frá tilgangi og markmiði vinnu náttúrufræðinemans með ritgerðarsmíð og vinnu. Þ. e. að fá yfirlit yfir það lífríki og þær náttúrumenjar sem er að finna í Vopnafirði og auðvelda miðlun helstu upplýsinga til almennings. Verkefninu er ætlað að bæta úr vöntun á aðgengilegri og læsilegri samantekt um rannsóknir og þekkingu á náttúrufari, skoða og greina frá fyrri rannsóknum og niðurstöðum þeirra. Markmiðið að ná saman og upplýsingum sem nýst gætu til námsefnisgerðar fyrir grenndarkennslu í náttúrufræðum í Vopnafirði. Verkefnið er almenningi ætlað, gestum og gangandi og er því með stuttu yfirliti hvern þátt náttúrufars.

 

Þess má að lokum geta að áhugasamir geta nálgast ritgerð Kristínar á www.skemman.is með því að slá upp nafni höfundar = Lokaverkefni: "Náttúrufar Vopnafjarðar" eftir Kristín Jónsdóttir





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir