Síðastliðinn sunnudag, þann 16. október, hófst Vinvikan 2011 með kvikmyndasýningu í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Sýningin var í umsjá unglinganna í æskulýðsfélagi Hofsprestakalls - Kýros - og mættu 75 bíógestir sem gæddu sér á poppi, gosi, krapi og sælgæti úr sjoppunni. Stemning eins og hún á að vera á kvikmyndasýningu.
Unglingarnir eru áhugasamir um verkefnið og hugmyndafræðina á bak við Vinavikuna. Mættu þeir tveimur klukkustundum fyrir bíósýninguna til að vinna að undirbúningi sýningar og sjoppusölu. Stólum var raðað í sal, búnir til bíómiðar, myrkvun salar komið á og svo var poppað af kappi og ku ekki hafa veitt af!
Á heimasíðu Hofsprestakalls segir svo:
Frítt var fyrir alla vini, en eins og í öllum bíóum voru afhentir bíómiðar við innganginn og rifið af þeim við salinn. Eins og fyrir allar sýningar voru kynningar, en í stað auglýsinga var sögðu Biblíusaga dagsins á skjávarpa, horft á þátt með Hafdísi og Klemma úr Sunnudagaskólanum og svo hófst sýning myndarinnar Rango.
Eftir sýninguna sáu unglingarnir um að ganga frá og þrífa, en eins og í alvöru bíó var drasl út um allt í bíósalnum en þau voru fljót að því og allir lögðu sitt að mörkum. Allir bíógestir skemmtu sér vel og áttu góðan dag í kirkjunni í Vinabíóinu og krökkunum í æskulýðsfélaginu þakkað þetta góða framtak.
Skal undir það tekið að framtakið var skínandi gott og sér hver maður að það féll í frjóa jörð þar eð meira en 10% íbúa sveitarfélagsins mættu til bíósýningarinnar. Í gær héldu ungmennin áfram og komu færandi hendi í fyrirtæki og stofnanir á Vopnafirði og skreyttu með blöðrum og hjörtum. Unglingunum var eðlilega vel tekið og ánægjulegt að sjá að hversu einfaldar skreytingarnar lífga uppá hversdagslegt umhverfið.
Á næstu dögum mega íbúar Vopnafjarðar eiga von á viðburðum ýmsum sem minna á mikilvægi kærleika og vináttu en Vinavikan er á vegum æskulýðsfélags Hofsprestakalls.
Myndirnar meðfylgjandi frétt eru frá Vinagöngu á sl. ári.