Komið er inn í miðbik Vinaviku á Vopnafirði og þó ekki alveg þar eð komandi sunnudagur markar hápunkt vikunnar með kærleiksmaraþoni, vinamessu og pítsuveislu - flugeldasýningu. Í dag kl. 15:00 er Vinaskrúðganga, verður lagt af stað frá Vopnafjarðarskóla og gengið valda leið að Kaupvangi þar sem myndað verður stórt hjarta í anda Vinavikunnar. Í gönguna eru allir hjartanlega velkomnir. Á sl. ári tókst vel til og standa vonir til að ekki verði þátttakan síðri í ár.
Á morgun, fimmtudaginn 20. október, býðst bæjarbúum að kaupa góðverk fyrir náungann af æskulýðsfélaginu, eitthvert tiltekið verk sem unglingarnir inna af hendi. Hugmyndin er að hlutaðeigandi verkkaupi gefi náunganum söng, bros, stutt spjall eða eitthvað í formi verks. Góðverkið getur hver og einn keypt á heimasíðu prestakallsins, www.kirkjan.is/hof
Á sunnudaginn 23. er kærleiksmaraþon á dagskrá milli kl. 12.00-17:00. Er boðið uppá ókeypis vöfflukaffi, bílaþvott (sem hlýtur að mótast að veðri að einhverju leyti), andlitsmálum fyrir þau litlu í safnarðarheimilinu ásamt fleiru. Milli kl. 12:00-14:00 verður gengið í hús og aðstoð boðin viðvíkjandi heimilisstörfin. Kl. 17:00 sama dag lýkur Vinaviku í Vopnafjarðarkirkju með Vinamessu og pítsuveislu í kjölfarið. Í messunni taka ungmennin þátt með því að kyrja söng sem þau hafa verið að æfa. Formleg endalok viku vina eru svo staðfest með flugeldasýningu - sjálfsagt í námundan við vettvang atburða þann daginn.
Um Vinavikuna segir:
Vinavikan er nú haldin öðru sinni á vegum æskulýðsfélags Hofsprestakalls.
Tilgangurinn er að minna á hin sönnu verðmæti lífsins, vináttuna og kærleikann.
Í Vinavikunni eru allir hvattir til að sýna umhyggju; heilsa, vinka, brosa, heimsækja, rétta hjálparhönd og þannig styrkja tengslin við hvert annað með vináttu og kærleika.
Eru þetta ekki prýðisgóð heilræði til okkar allra, alltaf.