Vopnafjarðarskóli fór í námsferð til Bandaríkjanna

19.10 2011 - Miðvikudagur

Í síðustu viku fóru starfsmenn Vopnafjarðarskóla í náms- og kynnisferð til Minneapolis í Bandaríkjunum. Nú skal sagan sögð í stuttu máli á þessum vettvangi en þó löndin séu ólík, Ísland og Bandaríkin, Minneapolis og Vopnafjörður, er margt sem læra má af öðrum og heimfæra upp á eigið umhverfi. Á þeirri staðreynd grundvallast ferð sem þessi en um leið og starfsmenn læra af öðrum eflist félagsvitundin innan hópsins og eftir situr ánægjuleg, fræðandi ferð með góðu fólki.

 

Ferðanefndin segir svo frá:

Farið var í heimsókn í fimm skóla með mismunandi áherslum. Á fyrsta degi voru skoðaðir tveir skólar sem vinna eftir uppbyggingastefnunni eða uppeldi til ábyrgðar. Annars vegar var Highland elementary school, sem er skóli fyrir fimm til tólf ára nemendur. Þar er á hverju ári unnið með lífsgildin og grunnþarfir einstaklings og sáum við mörg áhugaverð verkefni tengd því. Hins vegar var Richfield High school en þar er eru nemendurnir frá 14 til 18 ára. Í þeim skóla  ríkti viss menning sem er tengd uppeldi til ábyrgðar og nemendur sem hann sækja finna fyrir öryggi í skólanum sem þeir  upplifa ekki endilega í umhverfinu utan skólans. Stór hluti nemenda kemur frá brotnum heimilum.

Á öðrum degi fórum við að heimsækja svokallaða Charter skóla. Charter skólar eru skólar þar sem kennarar með ákveðna hugsjón hafa stofnað vegna þess að þeim fannst þeir geta lagt meira fram heldur en þeir gátu í almenna skólakerfinu. Hluti starfsfólks fór og skoðaði Community of peace en hinn hlutinn fór og skoðaði Twin citys academy school.

Síðasta daginn fórum við öll saman að skoða borgarskóla, sem heitir Barton Open school, og er opinn skóli fyrir nemendur frá 1. og upp í 8. bekk. Með opnum skóla er verið að tala um blöndun í bekki í samkennsluformi.

Markmið ferðarinnar var m. a. að skoða skóla sem vinna eftir uppbyggingastefnu, einnig lögðum við mikla áherslu á að skoða skóla með aldursblöndun þar sem við erum lítill skóli með samkennslu árganga. Tilgangurinn var líka að vekja okkur sem fagfólk til umhugsnar um mismunandi skólastarf og skólaumhverfi, fá hugmyndir um nýjar aðferðir og áherslur ásamt því að víkka sjóndeildarhringinn.

Eftir ferðina finnst okkur við hafa séð og upplifað margt sem við teljum okkur geta nýtt í skólanum til að gera hann að enn betri skóla. Í framhaldinu verður unnin skýrsla um ferðina og verður hún aðgengileg á heimasíðu skólans.

Að lokum viljum við þakka skólasamfélaginu fyrir skilning og jákvæðni í garð okkar starfsmanna vegna þessarar ferðar.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir