Vinaganga í gær, Vinadagur í dag

20.10 2011 - Fimmtudagur

Æskulýðsfélag Hofsprestakalls slær hvergi slöku við í viðleitni sinni að gera Vinavikuna að þeim atburði sem henni er ætlað að vera. Í gær kl. 15 lagði hópur af stað frá grunnskólanum í Vinagöngu í lögreglufylgd og gekk um götur þéttbýlisins uns komið var í miðbæinn þar sem hópurinn myndaði hjarta með því að takast í (vina)hendur. Í dag, fimmtudaginn 20. október, verður svo framhald á því dagurinn er Vinadagur og þá hyggjast ungmennin gera þeim er það vilja góðverk.

Svo sem áður greinir er Vinadagur í dag - hann á auðvitað alltaf við en aldrei verður of oft minnt á gildi vináttunnar - og munu krakkarnir hafa frumkvæði af brosi til náungans, söng, spjalli eða faðmlagi líkt og þau gerðu eftirminnilega í Kauptúni í fyrra. Íbúum býðst að kaupa af ungviðinu góðverk og styrkja starf þeirra þá um leið - og þeir sem aðgengi hafa að tölvu geta farið inná www.kirkjan.is/hof og pantað góðverk. Og ef ekki þá munu glaðbeittir krakkarnir ganga í hús og bjóða fram fúsar hendur til góðra verka.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir