Vinavikulok í gær

24.10 2011 - Mánudagur

Vinaviku lauk með formlegum hætti í gær, sunnudaginn 23. október, með kærleiksmaraþoni, vinamessu, pítsuveislu og flugeldasýningu. Vinavika Hofsprestakalls var haldin í annað sinn og má segja að vikan sé að orðin að ómissandi þætti í félags- og menningarlífi Vopnfirðinga en sá fallegi hugur að baki hugmyndarinnar um vinaviku að hausti er einkar vel til fundinn á tímum rósturs og óeiningar víða um heim. Það að minna á hin sönnu verðmæti lífsins, vináttu og kærleika, verður aldrei ofgert. Ber að þakka kirkjunni frumkvæðið, krökkunum einkum og sér í lagi þátttökuna.

Það er gleðilegt að geta þess að Vopnfirðingar voru örlátir í stuðningi sínum við kærleiksframtakið og eins og kemur fram hér að neðan söng hópurinn í kirkjunni "Hjálpum þeim" og svo áhrifaríkur var flutningur þeirra og yndislegur að margur felldi tár, tár af stolti og gleði yfir þeim öndvegis ungmennum sem hér búa.

Meðfylgjandi er vinakveðja fulltrúa hópsins er að Vinaviku stóð, skrifuð í gær.

Kærleiksmaraþon í Vopnafjarðarkirkju

“Ég táraðist af gleði”

 

Unglingarnir í Vopnafjarðarkirku stóðu í ströngu í dag með því að setja punktinn yfir Vinavikunna 2011 á Vopnafirði. Þar voru hendur látna standa fram úr ermum. Vopnfirðingar fjölmenntu í kirkjuna og þáðu veitingar sem unglingarnir buðu upp á. Einnig gengu þau í öll hús á Vopnafirði og buðu fram aðstoð sína við heimilsverkin.

 

Vopnfirðingar voru örlátir í stuðningi sínum við kærleiksframtak unglinganna og söfnuðust yfir 300.000.- kr. í frjálsum framlögum, sem varið verður til þess að styrkja ferð æskulýðsfélagsins á Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar á Selfossi og til styrktar munaðarlausum börnum í Japan.

 

Kærleiksmaraþoninu lauk með Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju. Þar voru samankomin á annað hundra manns og unglingarnir stóðu fyrir helgihaldinu, þmt. kirkjusöngnum, ásamt sóknarpresti. Guðsþjónustan var sannkallað vinamót. Í lok messunnar sungu unglingarnir „Hjálpum þeim“, sem þau höfðu æft síðustu vikur undir stjórn orgnistans. Fullorðin kirkjugestur sagði eftir messuna: „Söngurinn var svo fallegur að ég táraðist af gleði.“

 

Eftir messuna var pítsuveisla í safnaðarheimilinu og svo lauk dagskránni með flugeldasýningunni. Minnast menn þess ekki að messulok hafi farið fram með slíkum hætti.

 

Langur dagur að baki í kirkjunni á Vopnafirði þar sem unglingarnir lögðu sig fram frá morgni til kvölds. Um 30 unglingar taka virkan þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar á Vopnafirði.

 

Þetta framtak sýnir hve unga fólkið má sín mikils með frábærum verkum.

 

Með vinakveðju,

Debóra Dögg Jóhannsdóttir, 695 1527

Sigurður Vopni Vatnsdal, gsm. 869 0624

Sverrir Hrafn Friðriksson, gsm. 845 2313

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir