Lokaskýrsla starfshóps varðandi sameiningu austfirskra stoðstofnana, sem skipaður var í kjölfar samþykktar aðalfundar SSA 2010 var lögð fyrir aðalfund SSA, sem haldinn var á Hallormsstað 30. september og 01. október sl. Á aðalfundinum var samþykkt tillaga starfshópsins um að sameina starfsemi allra stoðstofnana sem sátu áttu í starfshópnum sem og starfsemi SSA í nýrri sjálfseignarstofnun með dreifðri þjónustu og aðkomu hagsmunaaðila gegnum fagráð og stjórn. Dreifð þjónusta þýðir í raun að á hverjum stað verði boðið uppá grunnþjónustu eða eins og segir í skýrslunni, að starfandi séu sýnilegar starfsstöðvar eða þjónustuver í öllum sveitarfélögum.
Nefndum starfstöðvum er ætlað að mynda „net“ starfsstöðva á Austurlandi (svæði SSA). Þjónustustig hverrar stöðvar þarf að skilgreina, þannig verður skilgreind lágmarksþjónusta á viðkomandi stafsstöð svo á hverjum stað verði einhver sem svarað geti fyrir heildina og tengt þann sem leitar þjónustu við réttu starfsmennina, burtséð frá því hvar þeir eru staddir.
Skipuritið hið nýja lítur svona út:

Á aukaaðalfundi Markaðsstofu Austurlands, haldinn föstudaginn 21. október sl. var samþykkt að fela núverandi stjórn sjálfseignarstofnunarinnar Markaðsstofu Austurlands að vinna að sameiningu á starfsemi og rekstri stofnunarinnar við aðrar stoðstofnanir atvinnu, menningar og menntunar á Austurlandi með það að markmiði að ný sameinuð stoðstofnun í sjálfseignarformi taki til starfa 1. janúar 2012. Ennfremur að leggja til að félagið sem staðið hefur að baki sjálfseignarstofnuninni Markaðsstofu Austurlands og stofnað var 7. febrúar 1999, verði sameinað Ferðamálasamtökum Austurlands og þau samtök gerð að hreinum hagsmunasamtökum ferðaþjónustuaðila án aðildar sveitarfélaga.
Ofangreint þýðir að sveitarfélögin eiga enga beina aðild að MA en eins og nýja skipuritið er uppbyggt má leiða að líkum að aðkoma sveitarfélaganna verði eftir sem áður veruleg. Sá stjórnarmaður sem sveitarfélgöin áttu í 7 manna stjórn MA hverfur hins vegar af vettvangi og beingreiðsla sveitarfélaganna til stofunnar um leið en um árabil greiddu þau tiltekna upphæð á hvern íbúa. Eins og greina má á skipuritinu er Kaupvangur inni sem þekkingarsetur með 2 stöðugildi.
Framundan er vinna innan allra stoðstofnana, fráfarandi stjórn MA hefur til að mynda ekki lokið af sér verkum sínum en stefnt er að svo verði um næstu áramót. Árið 2012 marki upphaf nýrra tíma í stoðstofnanakerfi Austurlands og er óskandi að vel takist til. Meira um málið síðar.
Myndirnar eru frá aukaaðalfundi Markaðsstofunnar sl. föstudag.