Það verður seint fullþakkað hversu vel hefur gengið hjá HB Granda hf. sl. ár því samfélagið Vopnafjörður nýtur svo sannarlega hagnaðarins ásamt félaginu. Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, er frá því greint að nýliðin síldarvertíð hafi verið svo gjöful að vinnslumet var slegið - og það þrátt fyrir aflasamdrátt á milli ára. Alls voru fryst um 20.400 tonn af síldar- og makrílafurðum í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði á vertíðinni en vinnslu lauk helgina 15.-16. október sl. Tímamótunum hyggst félagið fagna með heilmiklu síldarslútti í félagsheimilinu Miklagarði n. k. laugardag. Er öllum starfsmönnum og mökum þeirra boðið til veislu - og ekki nóg með það, heldur stendur öllum 18 ára og eldri stórdansleikur til boða á eftir með Stjórninni góðkunnu, án endurgjalds.
Á heimasíðu HB Granda segir síðan að 20.400 tonn frystar síldar- og makrílafurðir séu tæplega 27% aukning frá vertíðinni í fyrra og verður það að teljast góður árangur, ekki síst í ljósi þess að síldar- og makrílafli skipa félagsins dróst saman um tæplega 15% milli ára. Öllum aflanum var að þessu sinni landað til vinnslu.
Þetta kemur fram í samantekt uppsjávarsviðs HB Granda og að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar deildarstjóra voru nú fryst um 11.500 tonn af makrílafurðum og um 8.900 tonn af síldarafurðum. Mikil aukning varð í vinnslu á makríl milli ára því í fyrra voru fryst 4.800 tonn af makríl á Vopnafirði. Vinnsla á norsk-íslenskri síld dróst hins vegar saman um 2.400 tonn og er skýringanna að leita í því að síldarkvótinn var mun minni í ár en í fyrra. Aflasamdráttur skipa HB Granda á síldveiðunum í ár nam t.a.m. um 7.500 tonnum.
Heildaraflinn á nýliðinni vertíð nam um 37.200 tonnum af síld og makríl en til samanburðar má nefna að aflamagnið í fyrra var tæplega 43.700 tonn.
Er árnaðaróskum hér með komið á framfæri með von um að nýhafin loðnuvertíð verði öllum hlutaðeigandi hagkvæm í hvívetna. Svo er um að gera að koma sér í sparigírinn næsta laugardag og njóta samvista með góðu fólki, snæða úrvalsmat, syngja, hlægja og dansa svo inní vetrarnóttina við tóna Stjórnarinnar.