Vopnfirsk ungmenni á Landsmót ÆSKÞ

27.10 2011 - Fimmtudagur

Í dag, fimmtudaginn 27. október, fer myndarlegur hópur Vopnfirskra ungmenna á Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar, sem að þessu sinni er á Selfossi. Er um langan veg að fara fyrir krakkana okkar svo gist verður á Höfn aðfaranótt föstudagsins, sem gerir ferðina án efa enn skemmtilegri. Ferðaáætlunin liggur að sjálfsögðu fyrir en fyrir hópnum fer séra Stefán Már Gunnlaugsson en með honum 3 fullorðnir. Lagt verður af stað í dag kl. 16 frá safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.

 

Á Egilsstöðum verður áð og gist að Höfn eins og frá greinir. Á Selfossi er síðan dvalið fram á sunnudaginn 30. október en áætlaður komutími heim þann dag er undir miðnætti. Má því vænta að einn og einn úr hópi nemenda finni til nokkurrar þreytu mánudaginn 31. hafandi ljúfar minningar frá landsmótinu en er til eitthvað betra en að vera innan um góðan hóp jafnaldra sinna í uppbyggilegu kristilegu starfi?

 

Frá því hefur verið greint að séra Stefán Már fer fyrir hópnum en honum til halds og trausts og fara sem leiðtogar eru Arnar Ingólfsson, Heiðbjört Marín Tryggvadóttir og Þuríður Björg Wiium Árnadóttir.

 

Í auglýsingu á heimasíðu ÆSKÞ, Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar, er skrifað í gærkvöldi:

 

Á morgun munu rúmlega 500 ungmenni bruna á Selfoss og eiga þar saman FRÁBÆRA helgi á LANDSMÓTI ÆSKÞ! Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll og vonum svo sannarlega að þið munið eiga ógleymanlega helgi. Dagskrá landsmóts í ár er spennandi og þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Hópastarfið telur yfir 20 hópa þar sem þið getið lært allt frá Hip Hop yfir í Sushi. Fræðslan verður óvænt og skemmtileg … eitthvað sem enginn býst við! Tilviljun? Er búið að semja nýtt og ferskt landsmótslag sem verður frumflutt á setningunni á föstudaginn. Ingó Veðurguð heldur uppi stuðinu í sundlaugarpartýinu og Stuðlabandið tryllir lýðinn á ballinu ásamt Dj Búna ….. ÞETTA VERÐUR LEGENDARY!

 

Hvorki meira né minna en (þjóð)sögulegur viðburður og er ekki ónýtt fyrir þau 500 ungmenni sem þar verða að upplifa eitthvað alveg einstakt. Sem fyrr má vænta að krakkarnir okkar verði til fyrirmyndar, sjálfum sér og samfélagi sínu til sóma en hvað er ÆSKÞ?

 

Æskulýðssamband Þjóðkirkjunnar eru frjáls félagasamtök og starfa á landsvísu innan Þjóðkirkjunnar.

 

Markmið sambandsins er að:

 

a) Gefa ungu fólki tækifæri og hvetja þau til að taka þátt í fjölbreyttu og lifandi æskulýðsstarfi sem hefur boðskap Jesú Krists að leiðarljósi.

b) Efla æskulýðsstarf fyrir 6 – 30 ára innan Þjóðkirkjunnar

c) Vera vettvangur starfsfólks og sjálfboðaliða í barna- og unglingastarfi fyrir samfélag og fræðslu.

d) Standa að sameiginlegum verkefnum, auka samstarf og veita aðildarfélögum ráðgjöf um uppbyggingu og framkvæmd æskulýðsstarfs.

e) Vera málsvari fyrir ungt fólk og kristilegt æskulýðsstarf innan kirkju og utan.

f) Beita sér fyrir því að opna frekar möguleika ungmenna að kynnast ungmennum í kirkjustarfi á erlendum vettvangi.

g) Stuðla að samkirkjulegum og þvertrúarlegum verkefnum og samstarfi.

 

Þá er ekki annað eftir en að óska hópnum góðrar ferðar og megi allir hlutaðeigandi eiga indæla daga á Selfossi – efast sá sem þetta ritar ekki eitt augnablik að framlag okkar krakka, flutningur á „Hjálpum þeim“, muni vekja verðskuldaða athygli.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir