Heimildarmaður fór á fundi í Hallormsstaðstaðaskógi sl. föstudag, á hið glæsilega hótel sem þar er og ber nafn staðarins. Í sjálfu sér er fátt markvert við að farið sé til funda frá einum stað til annars nema að fundunum séu teknar tímamótaákvarðanir; það á við í þessu tilfelli og frá því greint á þessum vettvangi og varðar breytta tilhögun stoðstofnana á Austurlandi með Markaðsstofu Austurlands sem miðpunkt frásagnar.
Af hverju þá að orða fundaför, vikugamla að auki? Jú, eins og svo oft áður var myndavélin með í farteskinu og þá er hún líka brúkuð - á ferð ef því er að skipta. Löngun var til staðar að leyfa öðrum að njóta svo myndirnar birtast hér, sem eru misjafnar að gæðum, á síðu sveitarfélagsins.
Að sjálfsögðu má ekki segja frá þessu á opinberum vettangi því bæði er það eigi til eftirbreytni með hliðsjón
af umferðaröryggi, að myndað sé á ferð, og ekki síður í ljósi skrautlegrar sögu heimildarmanns sem ökumanns. Er að eigin áliti með liprari ökumönnum svæðisins, virðir rétt samborgara sinna og virðir hraðamörk í báða enda - svona yfirleitt. Hefur þó aldrei lært að bakka með því að notast við spegla né heldur að með kerru beislaða við bíl. Aldrei sturtað hlassi af bíl né ekið dráttarvél en myndavél hefur hann reynslu af.
Meðfylgjandi eru myndir úr austur (suður) för hinn 21. október sl. Veður var hið fegursta, sólskin og snjóföl á hálendi og við slíkar aðstæður er Ísland fallegt. Myndirnar opinbera að nokkru vanþekkingu myndasmiðs á næsta nágrenni en betra er að láta ósagt en að nefna eitthvert fjallið, fellið, hæðina eða hólinn rangnefni.