Vinavikan nær til alls landsins nú

30.10 2011 - Sunnudagur

Landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar, sem fram fer á Selfossi, lýkur í dag, sunnudaginn 30. október, og þegar inná heimasíðu ÆSKÞ er farið leynir sér ekki að dagarnir eru búnir að vera ungmennunum lærdómsríkir, ánægjulegir - ógleymanlegir. Það eru forréttindi að vera ungur Íslendingur og fá tækifæri til að taka þátt í viðburði sem þessum en á nefndri heimasíðu ÆSKÞ, www.aeskth.is, segir:

Gaman og alvara ræður í senn ríkjum hjá þeim rúmlega 500 unglingum sem koma saman á Selfossi um helgina á Landsmóti Æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar. Krakkarnir koma víðs vegar að af landinu, allt frá Reyðarfirði til Hvammstanga, Akureyri og Árbæ og taka allir þátt í fjölbreyttu unglingastarfi kirkjunnar um allt land.

Það er með mikilli ánægju sem við getum frá því greint á þessum vettvangi að Vinavikan á Vopnafirði nær orðið alls landsins nú; sú fallega hugsun sem að baki vikunnar býr hefur náð til annarra ungmenna og leiðtoga þeirra. Í Morgunblaðinu, á www.mbl.is, er skrifað í dag:

Unglingar á landsmótinu ætla að safna peningum til styrktar jafnöldrum sínum í Japan sem eiga um sárt að binda eftir jarðskjálftann fyrr á þessu ári. Unglingarnir í æskulýðsfélaginu Kýros á Vopnafirði hófu söfnun í síðustu viku og þau afhentu 60.000 krónur við setninguna. Unglingarnir frá Vopnafirði útdeildu líka rauðum hjörtum sem á stóð: „Ég er vinur“. Vinavikan á Vopnafirði hefur þannig breiðst út um allt land í gegnum landsmótið á Selfossi.

Framtakið er öðrum til eftirbreytni, sú fallega hugsun sem að baki verknaðinum er okkur öllum hvatning, sýnir sig að Vinavikan er ekki einungis mikilvæg í ungmennastarfi kirkjunnar heldur á hún erindi við okkur öll.

Landsmótið í ár vekur athygli á aðstæðum unglinga í Japan og líðan þeirra eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna í ár. Íslenskir unglingar vilja leggja sitt af mörkum til að hjálpa jafnöldrum sínum sem búa við óöryggi og streitu á hamfarasvæðunum og tekur dagskrá landsmótsins mið af því. Áfallastreituröskun eftir erfiða atburði getur lýst sér í kvíða, svefnleysi og vanlíðan en besta leiðin til að vinna gegn slíkri röskun er að styðja börn í því að njóta sín við leik í streitulausu umhverfi, svo góðar minningar skapist sem ýti hinum erfiðu til hliðar.

Í því sambandi hefur landsmótið samstarf við Hjálparstarf kirkjunnar og japönsku góðgerðarsamtökin Gullhjörtun (Hearts of Gold) en þátttakendur hafa unnið við ýmisskonar fjáröflun heima í héraði til þess að undirbúa landsmótið. Prestur innflytjenda, sr. Toshiki Toma er sértakur ráðgjafi og tengiliður landsmótsins við Japan og japönsku samtökin.

Seint í kvöld er svo von á ungmennunum okkar heim og verða það örugglega glöð og reif börn sem leggjast til svefns hafandi tekið þátt í viðburði þar sem höfuðmarkmiðið er að þroska hug sinn og láta gott af sér leiða.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir