Snyrtistofan Hafblik opnar á Vopnafirði

31.10 2011 - Mánudagur

Nýtt fyrirtæki hefur tekið til starfa á Vopnafirði því frá og með föstudeginum 28. október sl. býður Snyrtistofan Hafblik viðskiptavinum þjónustu sína. Eigandi stofunnar er Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir, snyrtifræðingur, Vopnfirðingur með góð tengsl við Höfn og hennar maður er Vopnfirðingurinn Hörður Magnússon, flugstjóri. Fá þau hamingjuóskir sendar með von um að snyrtistofan njóti velvildar heimamanna og þjónustunnar í hvívetna. Miðað við mætingu við opnun er áhugi sannarlega til staðar og gleðilegt að þjónustustig sveitarfélagsins skuli breikkað með opnun Hafbliks.

Snyrtistofan mun bjóða upp á fjölbreytta þjónustu fyrir bæði kyn þó sjálfsagt verði konurnar duglegri að nýta sér þjónustuna en karlarnir. Fyrirkomulag opnunar, hafi heimildarmaður skilið málið rétt, er að Guðrún Jóhanna, sem fagnaði afmæli sínu á opnunardaginn, verður á Vopnafirði ákveðna 10 daga í mánuði hverjum. Símann hefur hún ávallt sér við hlið svo auðvelt er að nálgast þjónustuna.

Í anddyri snyrtistofunnar hanga tvö málverk listakonunnar Guðrúnar Jóhönnu, sem lofa listamanninn en hvert smáatriði er þar að finna, pensilstrokur svo hárfínar að minnir helst á ljósmynd á að líta. Er því hér með komið á framfæri að listakonan Guðrún Jóhanna haldi málverkasýningu heimkomin á ný, er sá sem þetta ritar reiðubúinn að leggja því máli lið.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir