Foreldrafélagið ályktar um framhaldsdeild

01.11 2011 - Þriðjudagur

Foreldrafélag Vopnafjarðarskóla hélt aðalfund sinn í sal skólans í gær, mánudaginn 31. október. Var mætingin þokkaleg en eins og gjarnan er kemur yfirleitt sama fólkið til funda sem þessa. Hvað um það þá var fundurinn sérlega áhugaverður því fundarmenn tóku af heilum hug þátt í umræðu um hin ýmsu mál er varðar skólann, foreldra og samfélagið í heild. Flutti formaður, Stefán Már, í upphafi fundar skýrslu stjórnar en með nýrri stjórn hefur verið stigið stórt skref fram á við í starfi foreldrafélagsins og ber að fangna því faglega starfi sem þar er unnið. Starfið styrkir skólann um leið og það stuðlar að frekari þátttöku foreldra í starfi stofnunarinnar.

Var á fundinum samþykkt tillaga stjórnar að hlutverki bekkjarfulltrúa en litið er svo á að æ mikilvægara er að samstarf foreldra/forráðamanna og skólans, nemenda og kennara, sé eins öflugt og við verður komið - það er allra hagur. Var tillagan í heild sinni samþykkt einróma en eins og segir í tillögunni er bekkjarfulltrúanum ekki ætlað að vinna verkið einn heldur að miðla verkum og fylgja þeim eftir.

Formaður hafði framsögu um framhaldsdeild á Vopnafirði í anda þess sem verið hefur á Þórshöfn/Langanesbyggð sl. 3 ár þar sem nemendum býðst að taka fyrstu 2 árin í framhaldsskóla í heimabyggð. Sú reynsla sem Þórshöfningar hafa af sinni deild, sem er í öflugu samstarfi við Framhaldsskólann á Laugum, er sérlega góð - og eldra dæmi frá Patreksfirði. Fram fór ákaflega lífleg og góð umræða um málið og samþykkt einróma að leggja til við sveitarstjórn Vopnafjarðar að vinna að framgangi málsins og mun stjórn foreldrafélagsins fylgja málinu eftir.

Einelti er stórmál sem aldrei verður hægt að horfa framhjá. Innan sem utan skóla viðgengst þessi andstyggilega meinsemd en það var almenn skoðun fundarmanna að með öllum ráðum skyldi unnið að því að deyða vágestinn í fæðingu hvers tilfellis. Það er ekki einfalt mál og sjálfsagt miklu erfiðara en maður hyggur. Á hinn bóginn er hægt að afreka góða hluti ef fólk er fullkomlega meðvitað um hvað í hugtakinu felst og sá mikli vilji sem kom fram á fundinum sýnir að fólk vill allt til þess vinna að samfélagið okkar standi saman með náungakærleikann að leiðarljósi.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir