Messur, æskulýður og töfrar

04.11 2011 - Föstudagur

Á næsta sunnudag er messað í báðum kirkjum Vopnafjarðar, Vopnafjarðarkirkju og Hofi, kl. 11:00 og 14:00 í hlutaðeigandi kirkjum. Beðið verður fyrir látnum og er vísað til fornrar hefðar, allraheilagramessu, sem snemma varð einn af helgustu messudögum íslensku kirkjunnar og var ekki afnumin í þeirri mynd fyrr en árið 1770, eða rúmum 200 árum eftir að evangelísk-lútersk kirkja náði völdum; textar og bænir sem messudeginum fylgdu voru þá jafnframt lögð til næsta sunnudags þar á eftir.

Kirkjugestum boðið að tendra ljós í minningu látinna ástvina. Sunnudagaskóli verður í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Ungmenni úr æskulýðsfélagi Hofsprestakalls segja frá landsmótinu umliðna helgi og sýndar verða myndir úr ferðalaginu.

Allraheilagramessa er 01. nóvember. Hún á sér fornar rætur því vitað er til að messur þar sem beðið var fyrir látnum voru haldnar þegar á 4. öld eftir Krist. En oftast er upphaf allraheilagramessu samt rakið til þess er Pantheonhofinu í Rómaborg var breytt í kirkju og vígsludagurinn - 13. maí árið 609 eða 610 - jafnframt helgaður öllum píslarvottum.

Er sjálfsagt að taka frá tíma fyrir messu n. k. sunnudag, nú býðst að velja á milli kirkna en tilgangurinn helgar meðalið þar sem látinna verður minnst. Það er einnig þess virði að hlýða á ungmennin segja frá för sinni á Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar um síðustu helgi þar sem þau þóttu standa sig með mikilli prýði og voru sjálfum sér og samfélagi sínu til mikils sóma.

Það var einnig sómi að þeirri sýningu sem Einar Mikael töframaður bauð uppá í félagsheimilinu Miklagarði í gærkvöldi en frammi fyrir 50-60 manns á öllum aldri skemmti þessi listamaður töfranna í 1.5 klukkustundir og má fullyrða að engum hafi leiðst eitt augnablik. Blandaði Einar Mikael saman gaman og alvöru, náði einstaklega veil til unga fólksins, sem var reiðubúið til að hjálpa til eins og töframaðurinn bauð.

Margt af því sem sjónhverfingameistarinn gerði verður að flokkast sem tær list og víst hefur maðurinn mikla ánægju af því að láta blekkja sig - blekkja sig frá hendi sjónhverfingamannsins að minnsta kosti. Mikil vinna liggur að baki sýningarinnar, sem heldur áfram suður eftir Austurlandi í dag, en á sviðinu er eins og það sé ekkert mál að fá blýant til að skrifa nafn sem sviðsgestur hugsar sér, finna hring mitt inní sítrónu - sem inniheldur bæði egg og hnetu - eða láta borð tignarlega svífa! Þökk sé Einari Mikael fyrir eftirminnilegt kvöld og megi unga manninum vegna vel á komandi árum.

Meðfylgjandi mynd er frá skemmtun töframannsins á Vopnaskaki sumarsins.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir