Sveitarstjórn Vopnafjarðar hefur haft að markmiði að vinna gegn einelti og það starf sem unnið er innan veggja Vopnafjarðarskóla hefur verið öflugt og markvisst – unnið er daglega samkvæmt Olweusaráætlun skólans. Dagurinn í dag, 08. nóvember, er helgaður baráttunni gegn einelti um land allt, þjóðkirkjan er þar engin undantekning og á heimasíðu hennar, www.kirkjan.is, segir m. a.:
Áttundi nóvember er Dagur gegn einelti. Í bréfi til þjóðkirkjufólks í dag vekur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, athygli presta, djákna og safnaðarfólks á deginum. Hann hvetur til þess að þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti verði kynntur og að skrifað verði undir hann. Jafnframt mælist biskup til þess að kirkjuklukkum verði hringt þriðjudaginn 8. nóvember kl. 13 til að minna á þetta málefni.
Í dag kl. 13:30 munu starfsmenn sveitarfélagsins aðrir en starfsmenn grunnskólans hlýða á fyrirlestur um einelti og afleiðingar þess en sem kunnugt er spyr þessi vágestur ekki um stund né stað. Verður skrifstofa sveitarfélagsins lokuð af þessum sökum frá og með kl. 13:30 þann tíma sem fyrirlestur stendur.
Þegar ályktað er um baráttu gegn einelti er lögð áhersla að koma í veg fyrir það með öllum ráðum og fólk
vakið til umhugsunar um alvarlega afleiðingar eineltis.
Hugmyndin með því að helga tiltekinn dag baráttunni gegn einelti ár hvert sé að minna íbúa Vopnafjarðar og starfsmenn sveitarfélagsins með reglubundnum hætti á hættur og afleiðingar eineltis. Þannig er vakin athygli á því að virðing, umburðarlyndi og jákvæð samskipti skipta sköpum í öllum samskiptum inni á heimilum, vinnustöðum og almennt úti í samfélaginu.
Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum Degi gegn einelti, 08. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis. Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.
Eins og oftsinnis hefur verið bent á spyr einelti ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sammælast um ákveðna sátt, þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.