Menningarfulltrúi á Vopnafirði í dag

09.11 2011 - Miðvikudagur

Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi Austurlands, verður á Vopnafirði í dag milli kl. 11:00 og 16.00 með aðsetur í Kaupvangi. Miklar breytingar eiga sér stað í stoðstofnanakerfinu um þessar mundir og bein aðkoma ríkisins að málefnum menningar í annarri mynd en áður, héðan af verða málin afgreidd í meiri nálægð.

 

Menningarráð Austurlands hefur þegar auglýst eftir umsóknum á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi, mennta- og menningarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um menningarmál. Fram kemur í auglýsingu hér að lútandi að tilgangur með styrkjunum er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Austurlandi.

 

Samkvæmt auglýsingu eru áherslur ársins 2012 stór samvinnuverkefni, minni samvinnuverkefni, minni svæðisbundin verkefni og verkefni einyrkja. Auk þessa verða veittir undirbúningsstyrkir.

 

Minni svæðisbundin verkefni og einyrkja. Þessi verkefni geta vænst hámarksstyrks að upphæð 500.000 krónur en aldrei hærri upphæð en sem nemur 50% af heildarkostnaði verkefnis.

 

Minni samstarfsverkefni. Samstarf getur verið svæðisbundið, milli staða, einstaklinga, stofnana eða listgreina. Minni samstarfsverkefni geta fengið að hámarki 1 milljón króna en aldrei hærri upphæð en nemur 50% heildarkostnaðar.

 

Stór samstarfsverkefni. Í þessum flokki þurfa a. m .k. 3 aðilar að starfa saman og er einkum horft til verkefna er tengja saman Austurland og hvetja þá til samstarfs er öllu jafna vinna ekki saman. Heimilt að veita allt að 2 milljónum króna til slíkra verkefna en aldrei hærri upphæð en nemur 80% af heildarkostnaði.

 

Undirbúningsstyrkir vegna stærri verkefna. Er styrknum ætlað að auðvelda aðilum af stærra svæði að vinna saman, kanna forsendur og undirbúa verkefnaumsókn til ráðsins. Skilgreind markmið þarf að tilgreina, ávinningur samstarfs og væntanleg niðurstaða verkefnisins. Staðfest þátttaka og hlutverk hvers og eins verði tilgreind en styrkurinn er að hámarki 100.000 krónur á hvern þátttakanda en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði.

 

Í ljósi ofangreindra áherslna njóta forgang þau verkefni sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

 

·         Verkefni sem hvetja til samstarfs milli 2ja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina

·         Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu

·         Verkefni sem fara fram á vinnustöðum á Austurlandi

·         Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna

·         Verkefni sem miða að því að listnemar og ungir listamenn á Austurlandi komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.

 

Umsóknarfrestur er til og með 01. desember 2011 og fer úthlutun fram í upphafi árs 2012.

 

Greinargóð lýsing verkefnis fylgi með verkáætlun og tímasetningum, ítarlegri fjárhagsáætlun og upplýsingum um aðstandendur – og skilist til Menningarráðs Austurlands vía eyðublöð á heimasíðu þess, www.menningarrad.is

 

Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir í síma 471-3230 / 860-2983 eða í tölvupósti menning@menningarrad.is og þangað sendist umsóknir og í 8 eintökum í ábyrgðarpósti til MRA, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir