Það stendur í stjörnunum, Dagar myrkurs á Bustarfelli

10.11 2011 - Fimmtudagur

Íslendingar hafa notið einstakrar veðurblíðu sl. daga, sem er í engu samræmi við dagatalið. Hvað um það þá er óháð veðri haldnir s. k. Dagar myrkurs á Austurlandi, er spanna tímabilið 03.-13. nóvember að þessu sinni. Venju samkvæmt taka Vopnfirðingar þátt í viðburðinum en ólíkt síðastliðnum árum er viðburðurinn einungis einn og hann að þessu sinni í minjasafninu á Bustarfelli. Er um samstarf menningarmálanefndar og Bustarfells að ræða og þykir sumum sem tími hafi verið kominn til þar eð sveitarfélagið ber tæplega tvo viðburði dögunum tengdum. Mæting hefur þó verið með ágætum á báða staði hingað til, í þéttbýlinu og á Bustarfelli, sem er sum sé vettvangur viðburðarins laugardaginn 13. nóvember n. k.

 

Heiti viðburðarins að þessu sinni er „Það stendur í stjörnunum“ og mun hann taka mið af titlinum – horft verður til himins fremur en í skúmaskotin í leit að draugum. Nóg mun vera af þeim þó á Bustarfelli og aldrei að vita nema einn og einn geri vart við sig. Dagskráin er fjölskylduvæn og nóg um að vera. Þannig eru tónleikar í „Sparðinu“ hvar Baldvin Eyjólfsson fer sínu fólki, Vopnfirskum söngvurum er kyrja ýmis (þjóð)lög. Í baðstofunni verður einnig boðið uppá tónlist ásamt rökkursögum; stjörnukort dagsins verður að finna í húsinu ásamt verkefnasýningu leik- og  grunnskólans og gestum stendur til boða spila- og bollaspákonur, sem spá fremur að vilja en mætti!

 

Að sjálfsögðu verður ekki einungis sálin nærð því vetrarsúpa að hætti Bustarfells býðst gegn vægu gjaldi eða krónur 1300 fyrir 13 ára og eldri, ekkert fyrir þau yngri. Ennfremur brauð með súpunni og að máltíð lokinni kaffi, kakó, djús og meðlæti. Sá háttur verður hafður á að dagskráin er tvítekin, kl. 17:00 og 20:00, og mun fyrri hópurinn snæða að viðburði loknum meðan seinni hópurinn byrjar sína heimsókn á súpunni góðu.

 

Nú er um að gera að hafa sig uppúr sófanum og koma sér í menninguna, á laugardag kl. 17:00 eða kl. 20:00 er Vopnfirðingum og gestum boðið inní Bustarfell þar sem horft verður til stjarnanna.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir