Norræna skólahlaupið á Vopnafirði

14.11 2011 - Mánudagur

Norræna skólahlaupið fór fram í 28. sinn hér á landi í haust og var hlaupið á 3ja tug þúsund kílómetra af ca. 6000 nemendum. Vagalengdin er á við 16 ferðir umhverfis landið ef hringvegurinn er farinn. Nemendur Vopnafjarðarskóla þreyttu skólahlaupið sl. föstudag og var þátttaka að venju með ágætum. Veður var ekki til að spilla framkvæmdinni en sem kunnugt er hefur veðurfar nóvembermánaðar verið með eindæmum milt og má spyrja hvers vegna sunnanáttir ríkja að hausti en ekki að sumri. Svar liggur líklega ekki fyrir. Bauðst nemendum að hlaupa mislanga vegalengd allt eftir hvaða markmið nemandinn setti sér. Að sjálfsögðu máttu þeir hlaupa lengra þegar markmiðinu er náð en áhersla var lögð á að allir tækju þátt, hver með sínum hætti. Vegalengdirnar sem í boði voru: 3 km., 5 km., 7 km. og 10 km.

 

Á sínum tíma settu stjórnvöld sér markmið með norræna skólahlaupinu:

 

            Að hvetja nemendur til þess að æfa hlaup og auka með því útiveru og hreyfingu

Að kynna og skýra nauðsyn þess að hreyfa sig, reyna á líkama sinn og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan

 

Skyldi hlaupið  fara fram á tímabilinu 01. október - 01. febrúar

 

Undirbúningur:

 

Gert er ráð fyrir að nemendur fái tækifæri til þess að æfa undir hlaupið á skólatíma eða utan hans. Þeir sem skipuleggja og sjá um hlaupið verða að gæta þess að hlaupurunum sé engin hætta búin af umferð. Hlauparar mega velja sér vegalengd: 2,5 km, 5 km eða 10 km. Hver skóli skipuleggur hlaupið fyrir sig.

 

Keppni:

 

Með norræna skólahlaupinu er keppt að því að sem flestir (helst allir) verði með í hlaupinu. Þeir skólar sem þess óska geta þó að eigin frumkvæði komið á keppni milli einstakra bekkja, t. d. hvaða bekkur hleypur flesta kílómetra miðað við fjölda nemenda. Einnig mætti koma á keppni milli skóla með svipuðum hætti. Hver skóli tilkynnir samstarfsnefndinni í mennta- og menningarmálaráðuneytinu árangur sinn. Í skilagrein til samstarfsnefndarinnar skal koma fram hve margir tóku þátt í hlaupinu og hve langt hver þátttakandi hljóp.

 

Norræna skólaíþróttanefndin lætur gera viðurkenningarskjöl til þátttakenda og skólar fá einnig viðurkenningu.

 

Meðfylgjandi eru myndir frá skólahlaupinu.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir