Dagar myrkurs á Bustarfelli

15.11 2011 - Þriðjudagur

Dögum myrkurs var fagnað í minjasafninu á Bustarfelli sl. laugardag, 12. nóvember, í samvinnu safnsins og menningarmálanefndar. Var undirbúningur hafinn löngu áður en að viðburði kom en hvoru tveggja nemendur leik- og grunnskólans lögðu viðburðinum til efni. Dagurinn var langur fyrir þá sem að framkvæmdinni komu, sem var lítill samheldinn hópur. Gekk dagskráin vel fyrir sig og þeir sem leið sína lögðu inn í Bustarfell áttu þar góða stund en eins og stundum vill verða var mikið um að vera í sveitarfélaginu og kom niður á mætingu, eðlilega.

 

Í Sparðinu var boðið upp á tónleika auk þess sem sveitarstjórinn gerði að umtalsefni stjörnukerfið sem jörðin tilheyrir og er einungis eins og títuprjónshaus í stórum heystakk, stærð þess er í raun óskilgreind. Tónlistarfólkið stóð sig með mikilli prýði en skammur undirbúningur virtist engu skipta. Að Sparðargleði lokinni var haldið upp í baðstofu hvar boðið var upp á upplestur og gítarleik. Í minjasafninu var síðan eitt og annað í boði svo sem sjá má á myndum Jóseps Jósepssonar, Jobba, en í Hjáleigunni beið ilmandi vetrarsúpa, heimabakað brauð og bakkelsi með kaffi/kakó að máltíð lokinni.

 

Meðfylgjandi er myndasyrpa Jobba er fyllir í frásögnina að ofan.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir