Sigur í fyrsta leik Einherja í körfuboltanum

16.11 2011 - Miðvikudagur

Baráttan er hafin hjá okkar mönnum í körfuboltanum og má segja að byrjunin lofi góðu því lið Einherja vann 45:41 sigur á Ásnum sl. sunnudag. Það er ánægjuleg staðreynd að komin skuli vera af stað á nýjan leik keppnisleikir í sveitarfélaginu en fyrir þá sem áhuga hafa á vita að mikilli munur á sumrunum hvort Einherji er með keppnislið eður ei.

Að vanda var mætingin í íþróttahúsið með ágætum og hvatning okkar fólks til fyrirmyndar. Vonandi að framhald verði á og saman fari góð framganga leikmanna Einherja og stuðningur fylgismanna. Byrjunin er prýðisgóð og megi strákunum vegna vel í framhaldinu.

Einherji náði góðu forskoti í fyrsta leikhluta með góðum varnarleik og aga í sókninni en Ásmenn söxuðu síðan á það og það var jafnt um tíma. Þriðji leikhluti þróaðist svo svipað og sá fyrsti að okkar menn sigu fram úr en náðu aldrei að hrista þá alveg af sér, það var seigla í Ásmönnum. Ásmenn gerðu svo harða hríð að heimamönnum í lokin með 3. stiga skotum og náðu að saxa á forskotið en Einherji hélt haus og sigraði með 45:41 eins og áður sagði. Heimamenn voru einfaldlega betra liðið á vellinum að þessu sinni og uppskar samkvæmt því.

 

Leikurinn var prúðmannlega leikinn og Torberg og Sigurbjörn dómarar, höfðu ágæt tök á verkefninu.

Þetta var sigur liðsheildarinnar, „gömlu jaxlarnir“ eða kjarninn sem hefur verið að mæta á æfingar, stóð sig vel og nýliðarnir komu líka mjög sterkir inn. Það er kannski ósanngjarnt að nefna einhver nöfn en þó er rétt að tilgreina Stefán Má, sem sjaldan hefur spilað betur bæði í vörn og sókn og Svanur stóð vel fyrir sínu enda fær hann ekki endilega auðveldustu verkefnin. Fleiri stóðu sig með prýði og ber að þakka góða framgöngu. Leikmenn vilja líka þakka dómurum, tíma- og stigavörðum fyrir þeirra vinnu sem og áhorfendum sem hvöttu liðið til dáða.

 

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir, gæðin kannski ekki þau bestu en segja svolitla sögu af leiknum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir