Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, að 16. nóvember ár hvert, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, yrði dagur íslenskrar tungu – Jónas er listaskáld íslenskrar tungu. Í framhaldi af því hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu íslensks máls og helgað þennan dag rækt við það. Með því móti beinist athygli þjóðarinnar að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund og alla menningu.
Dagur íslenskrar tungu var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar lögðu hönd á plóg og efndu til viðburða af þessu tilefni. Má þar nefna fjölmiðla, skóla, stofnanir og félög. Menntamálaráðuneytið hélt hátíðarsamkomu og veitti þar í fyrsta sinn Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar. Dagur íslenskrar tungu hefur síðan verið haldinn hátíðlegur með svipuðu sniði og sífellt fleiri aðilar taka virkan þátt í honum með ýmsu móti.
Vopnfirðingar hafa tekið þátt í degi íslenskrar tungu um árabil og samkvæmt heimasíðu Vopnafjarðarskóla mun verða minnt á þennan dag með ýmsum hætti í skólastarfinu. Stóra upplestrarkeppnin er framundan og hefur oft átt upphaf sitt á þessum degi en á síðastliðnu ári lásu eldri nemendur fyrir þá yngri auk þess sem nemendur grunnskólans héldu yfir götuna og lásu fyrir unghjörtun á leikskólanum. 
Íslendingar hafa verið hvattir til að draga íslenska fánann að húni á degi íslenskrar tungu og er þeirri hvatningu komið á framfæri hér með.