Sveitarstjórn Vopnafjarðar stóð fyrir borgarafundi sl. þriðjudagskvöld, þann 15. nóvember, þar sem til kynningar var deiliskipulagstillaga sorphauga, fyrirkomulag sorphirðu og hugmyndir að nýju skipulagi kirkjugarðs þéttbýlisins. Til fundarins var mættur Halldór Jóhannsson skipulagshönnuður ásamt Þorsteini sveitarstjóra og Þórunni oddvita.
Eftir að hafa sett fundinn gaf Þórunn Halldóri orðið, gaf hann sér tíma til að renna yfir helstu þætti flokkunar sorps en það er skoðun ráðamanna sveitarfélagsins að viðbrögð íbúa tóku væntingum fram og vildu koma á framfæri þakklæti til þeirra, sem sýnt hafa ábyrgð í verki. Síðan fór hönnuðurinn yfir nýja deiliskipulagstillögu sorphauga, sem áður hafði farið fyrir sveitarstjórn. Slíkt skipulag er grundvöllur þess að unnt verði að sækja um áframhaldandi starfsleyfi fyrir urðunarsvæði Vopnfirðinga.
Jafnframt sorphaugum handan Búðaraxlar er skipulagt nýtt athafnsvæði en gangi áætlanir eftir varðandi Drekasvæðið má gera ráð fyrir uppbyggingu á Vopnafirði. Var fyrirspurnum svarað en margur hefur af því áhyggjur að aðalinnkoman í þéttbýlið skuli vera í næstu nálægð við sorphauga sveitarfélagsins en á það var réttilega bent að þeir þurfi ekki að vera sóðalegir og í annan stað verður unnið með umhverfið svo sem kostur er með gróðursetningu og mön. 
Málinu tengdu var hin nýja innkoma í þorpið úr norðri en Vopnfirðingar hafa löngum haldið því fram að innkoman sunnanmegin sé einkar fögur en þessi síðri. Má til sanns vegar færa að aðkoman er falleg þegar úr innlandinu er komið en akstur með lóninu, framhjá litla skógarlundinum á tangartoppi, stórbrotin fjallasýn handan fjarðar, með vel hannaðan hafnargarðinn milli fallegra hólmanna úti fyrir landi og myndarlega höfnina fyrir augum stenst innkoman samanburð. Og verði að endurbótum kirkjugarðsins svo sem fyrstu tillögur bera með sér mun hann ná athygli ferðamannsins og gleðja íbúa sveitarfélagsins ekki síður.
Kynning á hugmyndum varðandi kirkjugarðinn eru enn á frumhugmyndastigi en það sem kynnt var féll fundarmönnum með ágætum en eðlilega er mikið verk óunnið og verður ekki gert nema með sátt við íbúana og í fullri samvinnu við kirkjugarðsyfirvöld sveitarfélagsins. Hugmyndin er aukinheldur að endurheimta tjörnina innan garðsins og gæti orðið viðbót við afþreyingamöguleika íbúana um leið og hún myndi fegra umhverfið.