Austfirsk menning í ljósmyndum

18.11 2011 - Föstudagur

Við úthlutun styrkja Menningarráðs Austurlands fyrr á þessu ári fékk Héraðsskjalasafn Austfirðinga fjárstyrk til verkefnisins Austfirsk menning í ljósmyndum. Markmið verkefnisins er að fara með ljósmyndasýningar til fjögurra byggðarlaga á starfssvæði safnsins. Einn þessara 4ra staða er Vopnafjörður og síðastliðinn miðvikudagskvöld var að okkur komið, Hrafnkell og Arndís frá safninu mættu í Kaupvang með vel valið efni. Sýndu heimamenn málinu mikinn áhuga og fjölmenntu í Kaupvangskaffi og tóku virkan þátt í spjallinu en það lá hreint ekki fyrir í öllum tilfellum hverjir sátu fyrir á sumum myndanna, sem voru misgamlar.

 

Aðalefni sýningarinnar voru ljósmyndir frá staðnum og af fólki þaðan. Auk þess var á dagskránni greinargóð kynning á starfsemi Héraðsskjalasafnsins og sýning myndskeiða úr safni Austfirska sjónvarpsfélagsins og útibús Stöðvar 2 á Austurlandi. Þau myndskeið voru frá 9. og 10. áratug síðustu aldar og gáfu afar áhugavert þversnið af atvinnu- og mannlífi á Austurlandi á þeim tíma. Dagskráin var liðlega ein klukkustund að lengd og skemmti fólk sér konunglega enda fátt ánægjulegra en að rifja upp gamla, góða daga.

 

Myndböndin vöktu athygli og þær af athafnsemi starfsmanna Austfirska sjónvarpsfélagsins á Krossavíkurfjalli einkum og sér í lagi enda með hreinum ólíkindum hvað menn lögðu á sig í því sem næst ókleifum hamrinum. Myndskeiðin sýndu að strákarnir voru reiðubúnir að leggja á sig mikla óeigingjarna vinnu en sannarlega ekki fyrir hvern sem að sinna starfi sem þessu á toppi 1100 metra háu fjallinu og leyndi sér ekki að vinsældir Bronco-sins voru engin tilviljun. Menn voru svalir, misstu bílstjórar aldrei "kúlið" heldur sátu við opinn gluggann (var hann þá til staðar) með rettuna í munnvikinu.

 

Toppurinn var þegar farið var niður snjóbreiðu nokkra, ca. 60°C halli og skriður á bílunum - og úps! framrúðan féll af Willys jeppanum, sem rann niður hallann á óskilgreindum hraða! Þá var mikið hlegið enda komust menn þetta klaklaust - áður hafði sami Willys farið á hliðina en fátt þykir köppum sem þessum ánægjulegra en nákvæmlega svona stúss.

 

Ánægjuleg var kvöldstundin, sem lauk á viðtali við Ungfrú Alheim, Lindu Pé. Nokkrar myndir fylgja hér að neðan, nokkrar einmitt af því sem á tjaldinu var.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir