Fimmtudaginn 17. nóvember sl. heimsóttu Vopnafjörð þrír fréttamenn frá Japanska fjölmiðlafyrirtækinu Tokyo Broadcasting System, TBS. Hafði fréttarteymið farið um Vestur- og Norðurland á leið sinni austur og áttu vart orð til að lýsa fegurð landsins, hrikalegri náttúrunni og fjölbreytni hennar. Með hópnum var Halldór Jóhannsson, hönnuður aðalskipulags Vopnafjarðar.
Tilgangur heimsóknarinnar til Vopnafjarðar var öðru fremur að kynna sér hugmyndir Íslendinga um olíuleit á Drekasvæðinu svo kallaða og Norður-Íshafssiglingar. Ekki viðraði sem skyldi þegar menn hugðust skoða staðhætti í Finnafirði og á Gunnólfsvíkurfjalli því niðadimm þokan byrgði mönnum sýn og lítið varð úr myndatöku á svæðinu. Á hinn bóginn voru þeir vel upplýstir um hugmyndirnar, hvað framkvæmdirnar myndu þýða fyrir Vopnafjörð og Langanesbyggð einkum og sér í lagi, landið allt auk heldur. Var tekið viðtal við Þorstein sveitarstjóra og Gunnólf kollega hans á Þórshöfn hittu þeir einnig.
Eftir heimsóknina í Finnafjörð var til baka haldið til Vopnafjarðar, sest niður á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem málin voru rædd. Að afloknu spjalli og kaffisopa var hið glæsilega frystihús HB Granda heimsótt undir haldleiðslu Magnúsar Þórs Róbertssonar. Þótti gestum mikið til koma en svo vel vildi til að allt var á fullu við vinnslu síldar, voru myndir teknar á upptökuvélina og fréttamaðurinn mælti orð sem heimildarmaður kunni engin skil á en voru án alls efa hin gáfulegustu. 
Um kvöldið bauðst gestum að snæða lambakjöt að hætti Hótels Tanga og áttu vart orð að til að lýsa hnossgæti því sem í boði var. Gafst heimamönnum góður tími til að greina frá samfélagi sínu, stöðu þess og framtíðarhugmyndum – með og án Dreka. Ítrekuðu fréttamenn hversu stórbrotið landið væri og þeir miklu möguleikar sem landið virtist hafa þrátt fyrir tímabundnar þrengingar. Síðar um kvöldið tók Halldór gestina með sér í Selárdalslaug og þrátt fyrir dimmt veður þótti þeim heimsóknin í laugina á árbakkanum hreint mögnuð upplifun. Tjáðu þeir Vopnfirðingum að þeir hefðu lítið sofið síðan til Íslands var komið því þeir skiptu með sér norðurljósavakt um nætur!
Kynntu fréttamenn TBS sér hugmyndir Huang´s Nubo um lúxus hótel á Grímsstöðum og umhverfisferðamennsku. Okkur Íslendingum flestum finnst það líklega fráleitt að nokkur skuli vilja byggja upp 5 stjörnu hótel mitt í engu með 18 holu golfvöll og öllum þeim þægindum sem stjörnu hóteli fylgir. En smáþjóðin fámenna gleymir æði oft hvílík gæði felast einmitt í fámenninu og þeirri stórkostlegu náttúru sem er að finna á hálendi Íslands, víðáttunni, kyrrðinni – og hvað er langt frá Grímsstöðum að t. a. m. Dettifossi, Hljóðaklettum, Ásbyrgi og Mývatnssveit? Allt innan við 50 km. radíus eða svo. En hvort við eigum að heimila sölu á öllu landi sem útlendingar, með góðan ásetning vel að merkja, skal ósagt látið en með kauprétt tryggðan ætti tortryggnin að hverfa. Þess má geta að hin víðáttumikla jörð Grímsstaða, 300 ferkílómetrar, er stærri en borgarstæði Hamborgar, það gefur hugmyndir um stærð svæðisins.
Frá Vopnafirði héldu ferðalangar í suðurátt með viðkomu á Höfn, Jökulsárlóni og Skaftafelli – og sjálfsagt hefur Gullni hringurinn eitthvað komið við sögu.