Æskulýðsfélag Hofsprestakalls, Kýros, stóð fyrir Vinavikunni dagana 16.-23. okt., 2011. Hér fer skýrsla séra Stefáns Más Gunnlaugssonar en hann hefur frá öndverðu unnið mikið og gott starf í þágu æskulýðsmála sveitarfélagsins og kann þá list að virkja ungmennin til þáttöku. Þeirra er fyrst og fremst Vinavikan eins og skýrslan ber með sér.
Vinavikan var haldin í fyrsta skiptið í fyrra og tilgangurinn að minna á hin sönnu verðmæti lífsins, vináttuna og kærleikann. Kjörorð vikunnar voru: Jesús sagði: „Þetta býð ég yður að, þér elskið hvert annað.“ (Jh. 15:17).
HB Grandi, Vopnafjarðarhreppur, Bílar og vélar, Hótel Tangi, Landsbankinn, Stangveiðiklúbburinn Strengur, Kiwanisklúbburinn Askja, verslanirnar Kauptún og Mónakó styrktu dagskrá vikunnar og er þeim þakkaður mikilvægur stuðningur.
Dagskrá
Undirbúningur vikunnar hófst um miðjan septembermánuð. Æskulýðsfélagið skipaði nefnd sem lagði fram tillögur að dagskrá vikunnar. Á æskulýðsfundi þann 20. sept. var ákveðin eftirfarandi dagskrá:
· Sunnudagur – Vinabíó í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju kl. 15:00
· Mánudagur – fyrirtæki og stofnanir skreytt með blöðrum, hjörtum og fallegum skilaboðum
· Þriðjudagur – árla morguns gengið í hús og dreift hjörtum sem á voru skrifuð skilaboð sem minna á kærleika og vináttu
· Miðvikudagur – Vinaganga – skrúðganga um bæinn sem lauk með því að búið var til stórt manngert hjarta við Kaupvang
· Fimmtudagur – góðverkadagur. Unglingarnir buðu fram þjónustu sína og unnu góðverk, sem íbúarnir þakka með frjálsum framlögum.
· Föstudagur – Vinadagur. Unglingarnir voru á bensínstöðinni og dældu bensíni á bíla og aðstoðuðu fólk við verslunarinnkaupin í versluninni Kauptúni. Þá heimsóttu unglingarnir heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Sundabúð, gáfu öllum knús og barmerki, sem á stóð „Ég er vinur.“
· Sunnudagur – árlegt kærleiksmaraþon æskulýðsfélags Hofsprestakalls. Opið hús í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Boðið upp á bílaþvott (féll niður vegna veðurs í ár), djús, vöfflur, skúffuköku, kaffi, andlitsmálun fyrir börn o. fl. – ókeypis. Einnig gengu unglingarnir í hús og buðu fram aðstoð sína við heimilisstörfin. Kærleiksmaraþoninu lauk með fjölmennri Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju, á eftir var pítsuveisla og svo lauk Vinavikunni með flugeldasýningu. Við messuna sungu unglingarnir lagið „Hjálpum þeim“ sem þau höfðu æft. 
Byggt var á dagskránni frá því í fyrra og bætt við. Þannig var Vinabíóið og góðverkadagurinn viðbót við dagskrána. Hvort tveggja tókst mjög vel, einkum Vinabíóið sem var fjölsótt. Þátttaka unglinganna var mjög góð í öllum viðburðum og mun betri en í fyrra, t. d. mættu öll í kærleiksmaraþonið og tóku virkan þátt. Þá má ekki gleyma allri undirbúningsvinnunni sem þau stóðu að, undirbúa bíóið, klippa út hjörtu, barmmerki, búa til skilaboð og einnig öllum stundunum sem við ræddum framkvæmdina. Þá er foreldrum þökkuð aðstoðin við kærleiksmaraþonið sem stóðu vaktina með krökkunum. Þess skal getið að í tengslum við Vinavikuna var safnað í ferðasjóð æskulýðsfélagsins og safnaðist yfir 330.000.- kr. en aldrei áður hefur safnast svo mikið.
Í Vinavikunni er lögð áhersla allir taki virkan og jafnan þátt í undirbúningi og viðburðum. Þannig að verkefnið verði hvorki íþyngjandi né skyldurækið, heldur gefandi og skemmtilegt. Þá er markmiðið að skapa og styrkja tengsl unglinga og íbúa og lífga upp á hversdaginn með viðburðum og óvæntum uppákomum. Það tókst og árangurinn er að þakka unglingunum, lífsgleði þeirra, jákvæðni og áhuga.
Eftir Vinavikuna gerðu unglingarnir þakkarbréf sem sent var fyrirtækja og stofnanna þar sem þeim var þakkaður stuðningurinn. Einnig fluttu félagar úr æskulýðsfélaginu þakkarávarp við guðsþjónustu í Vopnafjarðar- og Hofskirkju.
Kynning
Sendar voru út fjórar fréttatilkynningar. Sú fyrsta á miðvikudeginum sem unglingarnir fylgdu eftir með því að hringja í alla fjölmiðla. Á föstudeginum sendu unglingarnir út eigin fréttatilkynningu og á sunnudeginum voru sendar út tvær til viðbótar. Þá var gefið út Vinavikublað á miðvikudeginum og var dreift í öll hús á Vopnafirði.
Fjölmiðlar sýndu Vinavikunni mikinn áhuga og sögðu fleiri fjölmiðlar frá Vinavikunni í ár en í fyrra, einkum á vefnum, en þrisvar sinnum var sagt frá henni á mbl.is og m. a. var frétt um Vinvikuna í 2. sæti yfir mest lesnar fréttir. Austurglugginn sagði frá vikunni tvisvar sinnum, einnig í útvarpsfréttum á RÚV og viðtal var við sóknarprest í eftirmiðdagsútvarpi Rásar 2. Þá voru umfjallanir á agl.is, vísir.is, kirkjan.is, ruv.is o. fl.
Vert er þó að þakka öflugum fréttaflutningi á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps sem fylgdi vel eftir viðburðum vikunnar af eigin frumkvæði, þar sem sagt var frá atburðum í máli og myndum. Það var dýrmætur stuðningur og átti stóran þátt í því að vekja áhuga íbúanna á framtaki unglinganna. Það vekur hins vegar athygli að sjónvarp allra landsmanna sá sér ekki fært að koma til Vopnfjarðar og gera Vinavikunni skil í ár.
Kostnaður
Fleiri fyrirtæki styrktu dagskrá Vinavikunnar í ár en í fyrra. Öll vinna við undirbúning og framkvæmd var unnin í sjálfboðavinnu. Sóknarprestur hafði með höndum verkefnastjórn og verkefnið hafði aðstöðu í kirkjunni. Framlög styrktaraðila voru 125.000.- kr. auk þess voru styrkir í formi afslátta og gjafa, t. a. m. gaf Hótel Tangi pítsuveisluna eftir messuna og verslunin Kauptún gaf góðan afslátt af því sem þar var keypt. Meta má heildarframlög með styrkjum, gjöfum og afsláttum á yfir 200.000.- kr.
Kostnaðarliðir voru m.a. Vinabolir, sem unglingarnir klæddust og settu mikinn svip á vikuna, efniskostnaður vegna kærleiksmaraþons, vinabíós o. fl. Og fyrir vel unnin störf var æskulýðsfélaginu boðið upp á pítsuveislu.
Niðurstöður
Dagskrá Vinavikunnar heppnaðist í alla staði vel. Vetrarfrí var í skólanum vikuna á undan og gerði það skipulagningu erfiðari en ella. Þá hefði mátt undirbúa vinagönguna betur . Reynt var að hvetja sem flesta til þátttöku við Vinavikuna, m. a. Ungmennafélagið Einherja, leikskólann, grunnskólann og fyrirtæki á staðnum og nýta þau sóknartækifæri sem þar felast. Mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir sveitarfélagsins komi að Vinavikunni með virkari hætti og styrki frekari vöxt Vinavikunnar.
Lagður hefur verið traustur grunnur að Vinavikunni, þó alltaf sé rúm fyrir nýja viðburði. Virkja þarf íbúana til
þátttöku og umræðu um gildi lífsins, vináttunnar í samfélaginu, t. d. með borgarafundi eða viðeigandi uppákomum. Einnig að bjóða fólki að koma í heimsókn til okkar og kynnast Vinavikunni með virkri þátttöku.
Styrkur Vinavikunnar felst í að skilaboðin eru skýr: að kærleikur og vinátta er grundvöllur gefandi lífsgæða sem allir þrá að njóta. Það er hlutverk kirkjunnar að rækta vináttu með hvert öðru í samfélagi með Guði. Jesús Kristur sagði: „Þetta býð ég yður að þið elskið hvert annað“. Árangur Vinavikunnar skilaði sér á Landsmóti æskulýðsfélaga kirkjunnar á Selfossi helgina 28.-30. okt. þar sem unglingarnir settu svip á mótið með glaðværð og samheldni og gengu undir heitinu: Vinirnir frá Vopnafirði.
Stefán Már Gunnlaugsson, sóknarprestur Hofsprestakalls