Því verður trauðla fram haldið að deyfð sé í menningar- og félagslífi Vopnfirðinga þessar vikurnar en sá tími fer í hönd að um hverja helgi er fólk upptekið við skipulagða viðburði eða eitt og annað er heimilið varðar. Komandi helgi endurspeglar framangreinda staðhæfingu.
Laugardagskvöldið 26. nóvember n. k. býðst Vopnfirðingum og nágrönnum tónleikar í félagsheimilinu hverjir innihalda lög 2ja frægustu hljómsveita poppsögunnar, The Beatles og The Rolling Stones. Ef að líkum lætur er hér um tónlistarveislu að ræða, sem er í höndum Austfirskra tónlistarmanna, en tónlistin miðast við þann tíma þegar meðlimir sveitanna voru ungir að árum og um það bil að leggja heiminn að fótum sér. Menn voru ýmist Bítlar eða Stónsarar líkt og síðar var með unga fólkið, sem ýmist var Wham! fylgjendur eða Duran Duran. Klukkan 22:00 hefst tónveislan, 2 klukkustundum síðar bjóða sömu tónlistarmenn til dansleiks.
Sunnudagurinn 27., fyrsti sunnudagur í aðventu, er enn ungur þegar messað er í Vopnafjarðarkirkju, kl. 11:00. Fermingarbörn tendra aðventuljós og lesa bænir. Sunnudagaskólinn í Vopnafjarðarkirkju hefst með þátttöku í messunni, en fyrir prédikun fara börnin í safnaðarheimilið þar sem samveran heldur áfram. Molakaffi, djús og kex eftir messu.
Bókmenntakynning er á dagskrá í Miklagarði kl. 14:00 með þátttöku eftirfarandi rithöfunda og verk þeirra:
Hallgrímur Helgason - Konan við 1000°
Ragna Sigurðardóttir - Bónusstelpan
Vigdís Grímsdóttir - Trúir þú á töfra?
Jón Yngvi Jóhannsson - Landnám, ævisaga Gunnars Gunnarssonar
Kvenfélagið Lindin verður með árlegt kaffihús sitt í Kaupvangskaffi frá og með kl. 15:30. Að vanda býðst fólki að fá sér kaffi- og/eða súkkulaðisopa og með því auk hins myndarlega kökubasars, sem aldrei svíkur. Að venju leggur kvenfélagið góðum málefnum lið með frumkvæði sínu.
Jólatréð við Kaupvang er að vanda miðpunktur jólaskreytinga sveitarfélagsins og klukkuan 16:00 munu ljós þess verða tendruð en að þessu tilefni mun sveitarstjóri flytja ávarp, kórsöngur hljóma undir stjórn Stephen Yates og jólasveinar að sjálfsögðu sækja Vopnafjörð heim og kæta börnin með sínum hætti.
Hafi fólk ekki fengið nóg stendur fólki til boða að fara héðan frá Vopnafirði til Egilsstaða kl. 17:00 og sjá leiksýninguna Hvað ef …? kl. 20:00. Í tilkynningu segir m. a.:
Hvað ef ? - skemmtifræðsla er leiksýning sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu. Þar er á mjög nýstárlegan og skemmtilegan hátt farið yfir kaldar staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, eineltis, sjálfsmorða og fleira.
Til að halda hópnum saman verður farið með rútu frá Vopnafjarðarskóla kl. 17:00. Borðað verður saman á Egilsstöðum fyrir leiksýningu og haldið heim að henni lokinni - beint í háttinn! Allir krakkar fá framangreint án endurgjalds svo vel er boðið en margir hafa lagt málinu lið, sem er alfarið Sigríðar Jóhannesdóttur og er hér með komið á framfæri þökkum til hennar.
Foreldrar eru velkomnir með á sýninguna Hvað ef …? þeim að kostnaðarlausu auk heldur.