Loks féll snjór á Vopnafirði

25.11 2011 - Föstudagur

Allt frá öndverðum október sl. hefur snjór ekki sést á láglendi í Vopnafirði. Raunar ríkti slík tíð að vafi lék á að komið væri langt fram á haust og inn í vetur en ekki fyrir löngu fór hitinn í 15.6°C á hitamælinum á Skjaldþingsstöðum. Í gær dró til tíðinda og þegar fólk skreið úr bóli í morgun blasti við hvít jörð, sem sumir fagna meðan aðrir gera það ekki.

Fyrr í vikunni fóru starfsmenn áhaldahúss um bæinn og skreyttu byggingar sveitarfélagsins með jólaseríum utanhúss, þá bólaði ekki á snjónum. Hann kemur þó alltaf fyrir rest en ekki er hægt að skrifa líkt og sólin að sumri því aldrei kom hún á liðnu sumri!

Við dreifbýlisbúar, sem þurfum langan veg til að sækja frekari þjónustu, höfum notið góðs af mildi Veturkonungs - svo maður leyfi sér að persónugera veturinn - en ekki þarf að hafa um það mörg orð hver sá munur er að aka um hálendið á þurrum vegi en snjólögðum svo ekki sé talað um krapa. Íslensk þjóð hefur frá öndverðu lært að lifa við dyntótt veðurfarið og einmitt fyrir þær sakir hversu duttlungafullt það er þreytumst við aldrei á að tala um það og velta vöngum yfir því.

Sagt er að fáar þjóðir ef nokkur fylgist jafn vel með veðurfréttum og Íslendingar en til er fólk sem situr við skjáinn hvert kvöld, horfir og hlustar en meðtekur ekkert! Svo er til fólk sem telur sig bara vera vel með á nótunum, meðtekur það sem sagt er en gerir svo ekkert með það sem sagt er og heldur af stað út í óvissuna með ófyrirséðum afleiðingum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir