Mikil er sú breyting sem orðin er á samfélagi okkar, þau skörpu skil sem voru áður á milli hins hversdaglega og hátíðar eru horfin. Jól og páskar standa engu að síður okkur nærri en með öðrum hætti en áður var, minnist heimildarmaður þess tíma þegar blátt bann var við að leika rokkplötur á heimilinu þegar jólahátíð stóð sem hæst. Slíkt vekti undrun ungmenna nútímans en þrátt fyrir framangreint er þess ávallt beðið með nokkurri eftirvæntingu að jólin gangi í garð. Fyrsti sunnudagur í aðventu var í gær og það þýðir tendrun ljósa jólatrésins við Kaupvang, jólatrés sem HB Grandi h.f. færir Vopnfirðingum að gjöf öðru sinni. Er kærum þökkum komið á framfæri hér með.
Eins og svo oft einmitt þennan dag var vindur napur, kólnunin í vindinum leynir á sér en sá sem reynir finnur skynjar fljótt hversu ágengur vindurinn getur verið. Annars var viðburðurinn með hefðbundnu sniði og hófst með ávarpi sveitarstjóra er lauk máli sínu með "Verði ljós" - og varð skjótlega að ósk sinni. Þá tók við söngur jólalaga, sem að þessu sinni var Karlakórs Vopnafjarðar að syngja og stóðu sig með prýði þrátt fyrir
kalda kveðju vindsins. Stephen Yates, kórstjóri, sat við píanóið og gerði vel að vanda. Að lokum var komið að skrýtnu köllunum, jólasveinunum sjálfum, sem heilsuðu börnunum glaðbeittir og fengu mannskapinn til að taka lagið. Nammi var dreift samkvæmt venju og voru pokar sveinanna, sem fullir voru í upphafi, fljótir að tæmast - en haft er fyrir satt að allir hafi fengið sem það áttu skilið :-)
Áður en kom að tendrun ljósa jólatrésins myndarlega buðu kvenfélagskonur í Lindinni til veislu, kaffi- og kakó auk Hnallþóra að hætti kvenfélagskvenna, alveg magnað kaffihús það.