Lyfsala Vopnafjarðar opnar á nýjum stað

28.11 2011 - Mánudagur

Lyfsala Vopnafjarðar opnaði verslun á nýjum stað í morgun í húsakynnum Kauptúns en síðastliðnar vikur vann Ingólfur Bragi málari að breytingum á húsnæði, sem áður hýsti útibú ÁTVR á Vopnafirði. Um árabil var lyfsalan staðsett í húsnæði heilbrigðisstofnunarinnar neðan Kolbeinsgötu og þó vel fari á að heilsugæsla og lyfsala deili saman húsi var löngu tímabært að taka til hendi þar eð lyfsalan hafði í raun ekkert sérrými þar sem hún var.

 

Eins og myndirnar bera með sér er hin nýja verslun lyfsölu Vopnafjarðar hin vistlegasta, aðgengileg fyrir viðskiptavininn sem hin var sannarlega ekki enda afgreitt í gegnum lúgu. Er óhætt að segja að vel hafi til tekist og starfsmaður eðlilega hinn kátasti er heimildarmann bar að garði skömmu eftir opnun kl. 10 í morgun. Vöruúrval er mikið og ljóst að vörusala meðfram hefðbundinni sölu lyfjabúðar muni aukast á nýjum stað enda fer bróðurpartur Vopnfirðinga í Kauptún í viku hverri og stendur þá lyfsalan þeim opin alla virka daga milli kl. 10:00-16:00. Má reikna með að boðið verði upp á laugardagsopnun eina tvo laugardaga í desember, sem hefði aldrei verið gerlegt á fyrri stað.

 

Er lyfsalan hér með boðin velkomin á nýjan stað vitandi að vel mun um báða fara, Kauptún og lyfsöluna, starfsmenn alla auk þess sem flutningurinn gefur HSA færi á að taka til hendi í eigin húsakynnum. Meðfylgjandi eru myndir frá fyrstu mínútum Lyfsölu Vopnafjarðar á nýjum stað auk nokkurra mynda frá vinnuferlinu, sem alltaf er ánægjulegt að skoða.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir