Á morgun, fimmtudaginn 01. desember, á fullveldisdegi Íslendinga, fagnar leikskólinn Brekkubær 20 ára afmæli og verður af því tilefni opið hús í leiksólanum á afmælisdaginn milli kl. 14:00-16:00. Af þessu tilefni munu börnin syngja og boðið verður uppá afmælisköku. Fyrrverandi starfsmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir ásamt bæjarbúum öllum og standa vonir um að sem flestir láti sjá sig af þessu merka tilefni.
Um Brekkubæ:
Á Brekkubæ eru þrjár deildir: Ásbrún fyrir 4-6 ára, Dagsbrún fyrir 3-4 ára og Hraunbrún fyrir 1-2 ára börn. Foreldrafélag er starfrækt við leikskólann og vinnur með starfsfólki. Boðið er upp á nokkra vistunarmöguleika: 4, 5, 6 og 8 klst.
Tekið er við eins árs börnum og biðlisti er stuttur, yfirleitt enginn. Skólanámskrána er hægt að skoða á vefsíðu Brekkubæjar, http://www.leikskolinn.is/brekkubaer/
Saga leikskólans:
Í upphafi voru það kvenfélagskonur á Vopnafirði sem hófu rekstur gæsluvallar árið 1967 og var hann starfræktur í þrjá mánuði á sumrin. Leikskólinn var síðan stofnaður árið 1975 og var hann til húsa í sal Verkalýðsfélags Vopnafjarðar til ársins 1976, en þá fluttist hann í einbýlishús að Lónabraut 19, sem Vopnafjarðarhreppur átti og var leikskólinn starfræktur þar í nokkur ár.
Þann 1. desember 1991 var síðan glæsilegur tveggja deilda leikskóli vígður, en bara önnur deildin var tekin í notkun það árið. Leikskólinn fékk nafnið Brekkubær, sem var valið úr mörgum nöfnum í hugmyndasamkeppni og var það Þorgerður Karlsdóttir sem átti það nafn. Þann 12. ágúst 2008 var opnuð ný viðbygging þar sem bættist við ein deild auk starfsmannaaðstöðu. Eru aðstæður leikskólans Brekkubæjar hinar bestu og vel fer um alla, nemendur jafnt sem starfsmenn.
Þess má geta að þann 23. júní í sumar fékk leikskólinn Græn fánann afhentan en þann heiður hlotnast þeim skólum sem sannarlega sinna umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu.