Fullveldisdagurinn er í dag

01.12 2011 - Fimmtudagur

Hinn 01. desember árið 1918 varð Ísland frjálst og fullvalda ríki. Tilviljun mun hafa ráðið því, að hann varð fyrir valinu, en ekki einhver annar. Æ minna hugsar íslensk þjóð um þennan dag eins merkilegur og hann er í sögu þjóðarinnar, einungis stúndentar halda í heiðri sögu hans en áður var hann til skamms tíma frídagur í skólum.

 

Dagurinn virðist skipta Íslendinga sífellt minna máli en ekki er sjálfgefið að land eins og okkar, rétt liðlega 300 þúsund manns, standi á eigin fótum. Ísland er eyland en hluti af stórum heimi og sem slíkt ákaflega háð aðföngum annars staðar frá. Vegna smæðar markaðarins heima fyrir þurfum við að koma vörum frá okkur og skapa landinu tekjur. Athygli vekur að Íslendingar skuli enn halda úti eigin mynt og í landi sem telur færri íbúa en t. a. m. Gautaborg í Svíaríki höfum við komist býsna vel af en erum að mestu hætt að velta fyrir okkur frelsinu – leita þarf lengi á vefsíðum dagblaðanna eitthvað er daginn varðar.

 

Líklega eiga þau íslensku börn sem erfa munu landið erfitt með að hugsa sér að Íslendingar hafi einhvern tíma haft kóng í stað forseta. Þó eru ekki nema tæp 70 ár síðan við yfirgáfum danska kóngsríkið. 1944 stofnuðum við lýðveldi hér á landi og kusum okkur forseta í fyrsta sinn. En þá höfðum við verið „frjálst og fullvalda ríki“ í rúm 25 ár. Íslendingar fengu nefnilega að mestu leyti sjálfstæði frá Dönum 01. desember árið 1918. Sjálfstæðisbarátta okkar hafði þá staðið síðan snemma á 19. öld.

 

01. desember árið 1918 tóku sambandslögin gildi. Samkvæmt þeim varð þjóðin fullvalda en við höfðum áfram danskan kóng. Einnig skyldu Danir sjá um utanríkismál okkar og landhelgisgæslu. Langt fram eftir 20. öldinni var 01. desember mikill hátíðisdagur. Þegar lýðveldið var stofnað kom það til tals að sá dagur yrði þjóðhátíðardagur okkar, svo stór var hann í huga þjóðarinnar. En niðurstaðan varð sú að velja afmælisdag Jóns Sigurðssonar, 17. júní, sem slíkan. Til skamms tíma var fullveldisdagurinn frídagur í skólum landsins og stúdentar Háskóla Íslands halda enn veglega upp á daginn. 01. des. er einn af opinberum fánadögum okkar Íslendinga. Í fótspor hafa stúdentar við Háskólann á Akureyri fylgt og erlendis er þessa dags ávallt minnst meðal íslenskra stúdenta.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir